11.08.2011 09:17

Landskeppni

Væntanlegir keppendur í landskeppni, vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir miðvikudaginn 24. ágúst n.k.           Mótshaldarar.

02.08.2011 22:52

Aðalfundarboð Landskeppni

Aðalfundarboð.

Aðalfundur Smalahundafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 26.ágúst 2011 kl.20  að Eyrarlandi Fljótsdal.

Venjuleg aðalfundarstörf.  Mætið vel og stundvíslega.

                                   Stjórnin.

                                  

                                 Landskeppni.

Smalahundafélag Íslands heldur landskeppni að Eyrarlandi Fljótsdal 27. og 28. ágúst 2011.   Keppt verður í flokki unghunda, B fl. og A fl.

Dómari verður Martin Calvin Jones frá Wales.

Keppni hefst á laugardaginn 27. ágúst kl. 10.

Hægt verður að fá gistingu í Végarði og þar er einnig tjaldstæði.   Sameiginleg grillmáltíð verður á laugardagskvöldið eftir keppni.

Félagsmenn, eigum góða helgi saman og mætum hress og kát.   Hægt er að skrá sig til keppni í síma 4771447, 4711835 og 4756757.

                                   Stjórnin.

31.07.2011 00:42

Wales Nationals

Sigurvegari keppninnar er KEVIN EVANS einn af Íslandsvinum okkar og sá sem fann Taff fyrir mig,
en þessi keppni verður lengi í minnum manna vegna erfiðra kinda  það hefur ekki oft gerst að svona margir hætti keppni í miðri keppni og margir mættu ekki í braut vegna aðstæðna einnig varð Kevin 3 í Brace keppninni en það er keppni með tveimur hundum og þar var hann með sigurvegarann í einstaklingskeppninni Greg og NorthHill Sweep, Greg  er aðeins á 4 ári
en nánari úrslit eru á www.welshnationalsheepdogtrials.org.uk


 


kv Gunni

 

30.07.2011 09:03

Leiðsögn með meistara

Heil og sæl öll

Vegna þess hve snemma á föstudag fyrir Landskeppni, dómarinn verður kominn hingað í Eyrarland, hefur verið ákveðið að gefa fólki tækifæri á að hitta hann og fá leiðsögn.  
Hann verður kominn hingað um kl  9:00.
Um óformlegt námskeið er að ræða og ekki verður tekið gjald fyrir. 
Eins og komið hefur fram hér á síðunni heitir hann Martin Calvin Jones.
Við hvetjum sem flesta til þess að koma og nýta þennan möguleika.  Það er ekki á hverju ári sem við erum að fá hingað erlenda dómara eða þjálfara, og þess vegna er gott að geta átt spall við þessa kappa.
kv Varsi

26.07.2011 18:59

Æfingar/kennsla í Mýrdal.


Æfingar/kennsla í Mýrdal.

  Eins og sést hér neðar , býður Gísli í Mýrdal upp á aðstöðu og leiðbeiningar við hundaþjálfun fyrir afar hóflegt gjald( og minna en hóflegt fyrir suma).

  Þetta er áhugaverður valkostur fyrir þá sem eru með ótamda eða lengra komna hunda og upplagt fyrir þá sem eru lengra frá að sammælast og taka kvöldstund saman.
 
Það er gríðarlega mikils virði að komast í þjálar kindur í frumvinnunni og styttir ferlið verulega.

Síminn hjá Gísla er 8474083 og það styttist í smalamennskurnar.

 Ég get haldið æfingar á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum kl.20 það sem eftir er sumars, gegn vægu gjaldi kr.1000 hvert skipti frítt fyrir elli og örorkulífeyrisþega, etv. nískupúka líka. byrjum í kvöld 26. júlí.:) kv.Gísli í Mýrdal.

26.07.2011 12:38

Túnið slegið

Þið sem ferðist með eigið gistirými eruð velkomin hingað á túnið á Landskeppninni
Ég má náttúrulega ekki auglýsa neitt slíkt á opinberum vetfangi, en þið látið það berast.
kv  Varsi

22.07.2011 09:50

Landskeppni Eyrarlandi 27.-8. ágúst

Minni á Landskeppnina í lok ágúst.
Það er búið að ráða dómara frá Wales,  Martin Calvin Jones sem er þaulreyndur dómari og keppandi í fjárhundakeppnum.   Það verður eflaust hægt að fá hann til þess að leiðbeina okkur eitthvað í leiðinni.
Vonandi koma svo bara sem flestir.
kv Varsi

19.06.2011 13:08

Fyrsta æfingin

Fyrsta æfingin þetta árið

Æfingin var haldin að Húsatóftum og komu nokkrir,færri en oft áður             
og það mættu fáir úr sýslunni en  það voru Aðalsteinn æfingar haldari, Reynir Þór Hurðabaki gjaldkeri og  Bjarni Háholti formaður en hann kom hundlaus hitt var allt fólk af höfuðborgarsvæðinu hundarnir voru misjafnir eins og alltaf en efni í hópnum, nú er ekkert sem heitir og að fjölmenna á næstu æfingu það hjálpar alltaf að sjá aðra og sjálfann sig í samanburði myndir af þessari æfingu eru í albúmi og þakka ég Dagbjörtu sem kom á sína fyrstu æfingu hjá okkur fyrir þær ég veit að hún á miklu fleirri myndir og vona ég að við fáum að njóta þeirra líka

kv Gunni

09.05.2011 22:22

Nýja skráningarkerfi SF'I?

Nú bíða efalaust margir einsog ég,eftir því að sjá nýja Hundaskrá Smalahundafélags Íslands og að geta skráð sín got í hið nýja kerfi.
Hvernig er?Eru engar fréttir af því,eða hvernig gengur að koma því af stað? 

26.04.2011 08:49

Frá Smalahundadeild Árnessýslu

Dagskrá næstu mánaða liggur fyrir, með fyrirvara um hugsanlegar breitingar.
 Samæfingar verða fimm þetta sumarið og er gert ráð fyrir að þær byrji um klukkan 20.00. 
16. júní á Húsatóftum, Aðalsteinn s: 8958913.- 7.júní í Háholti, Bjarni s: 8624917.- 21. júlí í Austurhlíð, Trausti s: 8659274.- 4. ágúst og 18. ágúst óstaðsett enn sem komið er.
Ákeðið hefur verið að stefna á að halda fjárhundanámskeið 17.-18.mars 2012. Takið helgina frá emoticon

11.04.2011 13:51

Ótitlað

Sælir aftur félagar

mér var að berast póstur frá isbu.is áðan,sem er eftirfarandi:

Sæll Einar
 
Ég hef lagst aðeins yfir þetta og búin að panta nokkrar bækur, myndbönd og
flautur.
 
Ég er að byrja að setja þetta inn á síðuna okkar undir gæludýravörur,
hundavörur og svo ýmislegt tengt smalahundum.
 
Vörurnar verða líklega komnar til landsins rétt eftir páska.
 
Ég vil samt vara þig við að þetta er frekar dýrt. T.d eru þessi
kennslumyndbönd miklu dýrari en venjuleg dvd mynd. Ég pantaði bara 1-2 af
hverri vöru og ætla að hafa mjög litla álagningu. Ef það verður einhver
eftirspurn þá panta ég bara meira.
 
Bestu kveðjur
Sunna

Svo nú geta menn pantað þarna ef þeir telja sig þess þurfa!!!

kveðja
Einar Jóels

07.04.2011 10:20

Ótitlað

Sælir félagar

ég var að skoða vefinn hjá Ísbú.is,þar sem seldar eru allslags vörur sem viðkoma búrekstri,þar á meðal vörur sem viðkoma sauðfjárrækt og hundahaldi.
Eitt og annað fannst mér þó vanta uppá hundavörurnar sem okkur sem hér lítum við,þætti nauðsynlegt að hafa aðgang að ásamt með matardölunum,sjampóinu og ólunum.Þannig að ég sendi póst á þau hjá Ísbú.is í gær og spurðist fyrir um hvort,þar sem smalahundar væru að verða nausynlegur þáttur í rekstri sauðfjárbúa og alltaf að aukast eign þeirra hjá sauðfjárbændum,hvort ekki stæði til að bjóða uppá vörur þeim tengdum svosem flautum og myndefni tengt þjálfun Border Collie ásamt einhverju lesefni.

það er skemmst frá því að segja að í morgun barst mér póstur þar sem mér var tjáð að kanna ætti hvað væri hægt að útvega og manneskja væri komin í kanna málið!!
Þannig að nú hvet ég alla þá sem telja sig þess þurfa,að fylgjast með hvort eitthvað skili sér inn til þeirra!!emoticon

Kv    Einar Jóels.

03.04.2011 22:17

Fyrsta skiptið

Jæja það eru til nokkur sönnunargögn um fyrsta skiptið sem Taff fór í kindur á Íslandi og er Aðalsteinn Aðalsteinsson frá Húsatóftum sekur um að hafa tekið þau en þar sem allt fór vel fram á hann þökk fyrir

kv Gunni


02.04.2011 00:20

Taff í fyrsta sinn í Íslenskum kindum

Sæl Öll nú eru liðnir tveir sólarhringar frá því að Taff kom úr einangrun og í kvöld var farið í fyrsta sinn í kindur og ég get ekki sagt annað en að þetta var eintóm hamingja hann fór vítt fyrir og hlýddi stoppi og hliðarskipunum vel og skipti hópnum eins og að drekka vatn og einnig rekur hann vel , hissa var ég mest á hlýðninni hún var mjög góð miðað við það að hann þekkir mig í 48 tíma
svo er  hann einstaklega elskulegur og börnin elska hannog hann er hrifinn af þeim svo við gætum varla verið ánægðari

kv Gunni

Flettingar í dag: 352
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 237
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 174283
Samtals gestir: 27140
Tölur uppfærðar: 5.5.2024 19:33:25