13.07.2021 15:44

ISDS vinnuhunda próf

Stjórn Smalahundafélags Íslands langar að kanna áhuga og bjóða upp á svokölluð ISDS vinnu hundapróf tengd Landskeppninni á Ytra Lóni í næsta mánuði. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að rennslin eru tekin upp á stafrænt form og send til Bretlands í dóm.
Elísabet Gunnarsdóttir ætlar að halda utan um þetta verkefni og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við hana í síma 8631679 eða í FB skilaboðum.
Frekari upplýsingar eru að finna á https://www.isds.org.uk/
Fyrir hönd stjórnar SFÍ hvetjum við sem allra flesta að ISDS skrá hundana sína, enda um gríðarlega mikið framfrara mál að ræða, bæði hvað varðar heilbrigði og ræktun.

Kv Jens Þór Sigurðarson.

10.09.2020 08:51

Vinnupróf ISDS (ROM)

Sælir SFÍ félagar. Ég tók að mér að setja mig í samband við ISDS (International Sheedog Society) til að skoða með aðra útfærslu á vinnuprófum (Registration on Merit - ROM) en verið hefur í ljósi óvenjulegra aðstæðna á tímum covic. ISDS mun tímabundið bjóða upp á video próf að því gefnu að fylgt sé nokkuð ítarlegum leiðbeiningum. Þeir sem hafa áhuga á að fara með BC hundinn sinn í próf og fá hann skráðan í ættbók ISDS meiga gjarnan setja sig í samband við mig í pm eða síma 8631679. Bkv. Lísa 

02.09.2020 09:09

Landsmót SFÍ 2020

Landskeppni SFÍ verður haldinn helgina 31. okt - 1. nóv á Kaldármelum í samstarfi við Smalahundafélag Snæfellsness.
Keppt verður í A-fl, B-fl og unghundfl 3 ára & yngri, annars nánari reglur inn á heimasíðu félagsins.
Dómari verður að þessu sinni frá Færeyjum, Jónleif Jørgensen, sem er einn af reyndustu dómurum færeyinga. Frábært tækifæri fyrir SFÍ félagsmenn að láta ljós sitt skína ??
Mynd gæti innihaldið: hundur og útivist

rifa ummæli

14.02.2020 10:41

Æfingar vetur 2020

Stjórn Smalahundafélags Íslands langar að benda félagsmönnum á að nú er fólk byrjað að æfa inni á nokkrum stöðum á landinu.

Þar sem tímasetningar og fleira tengt æfingunum er mismunandi, biðjum við áhugasama að hafa samband við viðkomandi aðila sem stjórnin vill nota tækifærið og þakka kærlega fyrir ó eigingjarnt starf:

Suðurland: Kristinn Hákonarson.

Snæfellsnes: Gísli Þórðarson og Svanur Guðmundsson.

Austur Húnavatnssýsla: Bjarki Benediktsson.

Þistilfjörður - Langanes: Sverrir Möller, Maríus Halldórsson og Krzysztof Krawczyk.


Fyrir hönd stjórnar Smalahundafélags Íslands
Jens Þór Sigurðarson.

03.10.2019 09:15

Úrslit Landskeppnninnar 2019

Smalahundafélag Íslands - Landsmót smalahunda Langanesi 24. og 25. ágúst 2019 - úrslit
Sæti A-FLOKKUR (stig af 110) skráning hunds dagur 1 dagur 2 samtals
1 Aðalsteinn Aðalsteinsson og Burndale Biff frá UK SFÍ 2016-1-0072 / ISDS 344058 69 103 172
2 Jens Þór Sigurðsson og Groesfaen Nap frá UK SFÍ 2014-1-0099 / ISDS 335224 80 85 165
3 Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum 1  SFÍ 2015-2-0075 / ISDS 346044 78 70 148
4 Svanur H. Guðmundsson og Smali frá Miðhrauni  SFÍ 2011-1-0085 75 72 147
5 Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi  SFÍ 2014-1-0056 / ISDS 340325 84 61 145
6 Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur frá Húsatóftum 2  SFÍ 2013-1-0014 / ISDS 359924 78 65 143
7 Maríus Snær Halldórsson og Sara frá Sigtúnum SFÍ 2010-2-0927 / ISDS 340340 61 77 138
8 Svanur H. Guðmundsson og Korka frá Miðhrauni SFÍ 2011-2-0061 / ISDS 340377 78 55 133
9 Þorvarður Ingimarsson og Queen frá Tjörn 1  SFÍ 2015-2-0087 / ISDS 342192 51 78 129
10 Agnar Ólafsson og Birna frá Tjörn 1  SFÍ 2015-2-0088 / ISDS 78 38 116
11 Marsibil Erlendsdóttir og Skutla frá Skálholti  SFÍ 2013-2-0072 49 64 113
12 Magnús Óskarsson og Prince Of The Night frá Wales  SFÍ 2012-1-0094 / ISDS 320994 47 55 102
13 Aðalsteinn Aðalsteinsson og Doppa frá Húsatóftum 2 SFÍ 2013-2-0012 / ISDS 340286 0 92 92
Sæti UNGHUNDAFLOKKUR (stig af 100) skráning hunds dagur 1 dagur 2 samtals
1 Maríus Snær Halldórsson og Fríða frá Hallgilsstöðum 1  SFÍ 2018-2-0070 82 90 172
2 Svanur H. Guðmundsson og Skessa frá Dalsmynni  SFÍ 2017-2-0043 64 71 135
3 Krzystof Krawczyk og Loki frá Hallgilsstöðum 1  SFÍ 2017-1-0071 41 53 94
4 Edze Jan de Haan og Seimur frá Dalatanga SFÍ 2017-1-0052 53 36 89
5 Marsibil Erlendsdóttir og Spænir frá Dalatanga SFÍ 2017-1-0051 45 29 74
6 Elísabet Gunnarsdóttir og Ripley frá Írlandi  SFÍ 2017-2-0080 / ISDS 354573 32 40 72
7 Svanur H. Guðmundsson og Skálm frá Dalsmynni SFÍ 2017-2-0041 0 70 70
8 Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir og Skotta frá Dalatanga  SFÍ 2017-1-0054 29 12 41
9 Magnús Óskarsson og Mánaskálar Klettur  SFÍ 2018-1-0058 6 0 6
Sæti B-FLOKKUR (stig af 100) skráning hunds dagur 1 dagur 2 samtals
1 Krzystof Krawczyk og Tígull frá Hallgilsstöðum 1 SFÍ 2015-1-0085 54 69 123
2 Björn Jóhann Steinarsson og Skriða frá Skriðu  SFÍ: ÓSKRÁÐ 56 16 72
3 Sigurður J Hermannsson og Táta frá Skriðu  SFÍ: ÓSKRÁÐ 33 17 50

22.08.2019 11:07

Landskeppnin 2019

Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2019 fer fram á Hallgilsstöðum á Langanesi dagana 24. - 25. ágúst.

Keppnin er haldin í samstarfi við Austurlandsdeild félagsins. Eins og venjulega er keppt í A-flokki, B-flokki og unghundaflokki.

Dómarar eru Gunnar Einarsson frá Daðastöðum og Sverrir Möller frá Ytra-Lóni.

Keppnin er tveggja daga og sigrar sá sem hefur samanlagt flest stig eftir báða dagana.

Aðalfundur félagsins verður haldinn á föstudagskvöldinu 23. ágúst klukkan 21:00 að Ytra-Lóni.

Báða keppnisdagana verður hægt að kaupa súpu í hádeginu á keppnisstað.

Skráning er hjá Lísu í síma 8631679 auk þess sem undirritaður getur tekið við skráningum. Skráningu lýkur klukkan 18:00 fimmtudaginn 22. ágúst til að hægt sé að ljúka vinnu við mótsskrá.

13.11.2018 23:25

Deildarmót Austurlandsdeildar SFÍ Eyrarlandi

Síðara haustmót Austurlandsdeildar SFÍ var haldið að Eyrarlandi 11. nóvember síðastliðinn. Eftir að hafa lengst af ferðast í grenjandi rigningu og svartaþoku voru farnar að renna tvær grímur á þá keppendur sem komu lengra að. Það var þó ekki ástæða til að örvænta því þegar sá í Eyrarland létti til og fór mótið fram við góðar aðstæður þó þokan hafi aðeins reynt að stríða þátttakendum á köflum. Á Eyrarlandi var öll umgjörð til fyrirmyndar eins og fyrri daginn og valinn maður í hverju rúmi. Þar var gott brautarstæði með ágætri yfirsýn og kindurnar þjálar. Aðeins sog frá útihúsum en kindurnar voru sanngjarnar og gáfu áreynslulítið eftir þegar hundarnir komust fyrir þær. Vegleg verðlaun voru í boði en Jötunn Egilsstöðum og Landstólpi Egilsstöðum styrktu deildina með verðlaunum í formi hundafóðurs.


Alls tóku níu hundar þátt og hundar í A-flokki fengu tvö rennsli hver þar sem betra rennslið gilti til úrslita. Dómari var Agnar Ólafsson frá Tjörn.

Deildin þakkar öllum sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir. Reglulega gaman að það hafi verið hægt að koma á tveimur deildarmótum þetta árið. Menn og hundar reynslunni ríkari. Vonandi ávísun á það sem koma skal.

ÚRSLIT VORU EFTIRFARANDI:

UNGHUNDAFLOKKUR (100 stiga keppni)

1.       Sverrir Möller og Garri frá Auðólfsstöðum - 63 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

2.       Sverrir Möller og Kári frá Auðólfsstöðum - 61 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

3.       Sigurður Max Jónsson og Tása frá Ósi, ógilt (M: Káta frá Ósi - F: Snati frá Eyrarlandi)


B-FLOKKUR (100 stiga keppni)

1.       Marzibil Erlendsdóttir og Valur frá Tjörn, ógilt (M: Brook frá Wales - F: Spaði frá Eyrarlandi)

A-FLOKKUR (110 stiga keppni)

1.       Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi  - 95 stig (M: Lýsa frá Hafnarfirði - F: Prins frá Daðastöðum)

2.       Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur frá Húsatóftum - 82 stig (M: Kría frá Daðastöðum - F: Brúsi frá Brautartungu)

3.       Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum - 79 stig (M: Skotta frá Daðastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

4.       Sverrir Möller og Gutti frá Hafnarfirði - 74 stig (M: Ólína frá Hafnarfirði - F: Karven Taff frá Wales)

5.       Marzibil Erlendadóttir og Skutla frá Skálholti - 57 stig (M: Týra frá Innri-Múla - F: Karven Taff frá Wales)



MYNDAALBÚM: 

05.11.2018 18:47

Deildarmót Austurlandsdeildar Ytra-Lóni

Deildarmót Austurlandsdeildar SFÍ var haldið að Ytra-Lóni á Langanesi sunnudaginn 4. nóvember 2018. Brautin á Ytra-Lóni liggur niður við sjó sem gerir mótsvæðið svolítið sérstakt og feikna fallegt. Sjávarlyktin fyllir vitin og öldurnar syngja og dansa í fjörunni. Svolítil snjódula lá yfir svæðinu en ekkert sem þáttakendur létu stoppa sig þó hún hafi mögulega tafið aðeins fyrir kindunum á köflum. Alls tóku ellefu hundar þátt og Gunnar Einarsson frá Daðastöðum sá um dómgæslu.

Á Ytra-Lóni var boðið upp á dýrindis veitingar. Súpa fyrir keppni og hlaðborð með alls kyns gómsætu kaffibrauði eftir mót. 


Eins og alltaf þá verða svona mót ekki til að sjálfu sér. Það þarf undibúning,  aðstöðu og kindur, aðstoðarfólk til að sjá um sleppingar, dómara og svo auðvitað keppendur. Svona mót eru kærkominn vettvangur fyrir okkur sem höfum áhuga á að áfram séu góðir smalahundar ræktaðir á Íslandi til að koma saman. Bæði til að sjá hvaða hundar eru til á landinu og hvernig þeir vinna, en ekki síður til að sjá hvert annað.

Við sem vorum þarna komin saman ræddum að gaman væri að reyna að hittast aftur í vetur við eitthvað annað tilefni.

Austurlandsdeildin þakkar öllum sem að mótinu komu kærlega fyrir sitt framlag. Þess má geta að þetta er fyrsta mótið í mótaröð Austurlandsdeildarinnar, en annað mót er fyrirhugað á Eyrarlandi um næstu helgi ;) 

 

ÚRSLIT VORU EFTIRFARANDI:

UNGHUNDAFLOKKUR (100 stiga keppni)



1.       Sverrir Möller og Kári frá Auðólfsstöðum - 74 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

2.       Sverrir Möller og Garri frá Auðólfsstöðum - 64 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

3.       Einar Atli Helgason og Kría frá Snartarstöðum - 34 stig/Hætti keppni (M: Skoppa frá Sauðanesi - F: Strumpur frá Snartarstöðum)

A-FLOKKUR (110 stiga keppni)


1.       Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum - 86 stig (M: Skotta frá Daðastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

2.       Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur frá Húsatóftum - 84 stig (M: Kría frá Daðastöðum - F: Brúsi frá Brautartungu)

3.       Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum - 81 stig (M: Sara frá Sigtúnum - F: Snati frá Móskógum)

4.       Maríu Snær Halldórsson og Sara frá Sigtúnum - 67 stig (M: Míla frá Bjarnastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

5.       Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi - 64 stig/Féll á tíma (M: Lísa frá Hafnarfirði - F: Prins frá Daðastöðum)

6.       Helgi Árnason og Skoppa frá Sauðanesi - 55 stig (M: Skutla frá Eyrarlandi - F: Prins frá Daðastöðum)

7.       Einar Atli Helgason og Strumpur frá Snartarstöðum - 36 stig/Féll á tíma (M: Rós frá Daðastöðum - F: Gutti frá Snartarstöðum)

8.       Sverrir Möller og Gutti frá Hafnarfirði - 0 stig/Ógilt (M: Ólína frá Hafnarfirði - F: Taff frá Wales)


MYNDAALBÚM: http://smalahundur.123.is/photoalbums/288729/


28.08.2018 22:49

Landskeppni 2018

Landsmót SFÍ 2018 25 - 26 ágúst
Var haldinn á Möðruvöllum í Hörgárdal í blíðskapar veðri. Smalahundafélag Hörgársveitar og nágrennis sá um mótið í ár og berum við þeim miklar þakkir fyrir.
Úrslit mótsins voru:
A -flokk 
1. Maríus S. Halldórsson og Elsa frá Hallgilstöum stig 87 + 79 = 166
2. Svanur Guðmundsson og Smali frá Miðhrauni stig 77 + 88 = 165
3. Maríus S. H. og Sara frá Sigtúni stig 77 + 81 = 158
4. Sverrir Möller og Gutti frá Hafnafirði stig 83 + 73 = 156
5. Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Dað. Stig 74 + 73 = 147
6. Aðalsteinn A. og Doppa frá Húsat. Stig (41) + 98 = 139
7. Svanur Guðmds. og A. Sweep stig 69 + 33 = 102
8. Svanur Guðmds. og Korka frá Miðhraun stig ( 10) + 67 = 77
9. Þorvarður I. og Spaði frá Eyrarl. Stig ógilt


Unghundaflokk
1. Þorvarður Ingimarsson og Queen frá Tjörn stig 67 + 70 = 137
2. Sverrir Möller og Kári frá Auðólfsstöum stig 59 + 75 = 134
3. Aðalsteinn A. og Snerpa frá Húsat. Stig 54 + 79 = 133
4. Agnar Ólafsson og Birna frá Tjörn 74 +43 = 117 
5. Sverrir Möller og Garri frá Auðólfsstöðum stig ( 31 ) + 64 = 95
6. Aðalsteinn A. og Biff stig (44) + 43 = 87
7. Kryzysztof og Oreó frá Hallgilstöðum stig ( 24 ) + 56 = 80


B- flokk
1. Halldór Pálsson og Píla frá Þorgrímsstöðum stig 80 + 26 = 106
2. Elísabet Gunnarsd. og Kolur frá Húsat. Stig (24) + 67 = 91
3. Kryzysztof og Tígull frá Hallgilss. Stig ( 25) + 55 = 80

Mynd frá Elin Moqvist.
Mynd frá Elin Moqvist.
Mynd frá Elin Moqvist.

21.07.2018 21:52

Landskeppni SfÍ

Landskeppni Smalahundafélags Íslands helgina 24-26 ágúst 2018

 

Í samstarfi við Smalahundafélag Hörgársveitar og nágrennis. Áætlað er að keppnin fari fram á  Möðruvöllum í Hörgárdal.

Keppt er í A-flokki, B-flokki og Unghundum. Keppendum er bent á að kynna sér reglur um keppnina á vef Smalahundafélagsins.  Slóðin er http://smalahundur.123.is/

 

Dómari verður hinn 68 ára gamli, Ian Fleming frá Suður- Skotlandi. Hann er sauðfjár og nautgripabóndi með 3000 kindur og 150 nautgripi. Hann hefur langa reynslu af keppni og mótahaldi á vegum ISDS. Hann er varaformaður ISDS í Skotlandi og hefur verið brautarstjóri stæstu móta ISDS mörg undanfarin ár (International and World Trial).

Hér er því um að ræða geysilega reyndan mann í flestu sem viðkemur Border Collie fjárhundum, bæði hvað varðar almenna notkun og svo keppnir. Fólki gefst tækifæri til þess að nýta sér þekkingu hans á föstudeginum með því að koma á námskeið þar sem hann miðlar sinni reynslu.

 

Námskeið byrjar kl. 09.00 á föstudeginum, leiðbeinandi verður eins og fram kemur Ian Fleming.  Námskeiðið er bæði fyrir lengra komna og byrjendur og það er öllum opið.

 

Á föstudeginum er einnig er hægt að koma með hunda í vinnupróf vegna grunnskráningar í ISDS. Upplýsingar um það veitir formaður SFÍ

Þorvarð Ingimarsson gsm 8621835

 

 Aðalfundur Smalahundafélags Íslands hefst kl. 20.30 á föstudag í Leikhúsinu á Möðruvöllum.

 

Upplýsingar um námskeiðið og keppnina ásamt skráningum eru hjá Aðalsteini H. Hreinssyni í s: 865-3910 eða á audnir1@simnet.is

Nánari tímasetning á keppni auglýst síðar
Top of FormBottom of Form

24.10.2017 19:34

Landsmót SFÍ 2017

Landsmót Smalahundafélags Íslands var haldið dagana 21. og 22. október 2017 í Austurhlíð Biskupstungum og hafði Smalahundadeild Árnessýslu umsjón með mótinu. Dómari var Anthony Boggy Warmington og kom hann frá Englandi fyrir tilstuðlan ISDS. Keppnisbrautin var krefjandi, en að sama skapi mjög skemmtileg. Ekki síst vegna þess að völlurinn var leitóttur og stundum hurfu bæði kindur og hundur sjónum smalans. Þá reyndi á taugar smalans sem þrufti að setja allt sitt traust á hundinn. Dómarinn hafði orð á því að íslenskar kindur væru erfiðari en hann ætti að venjast og reyndi því mjög á hæfni hundanna að stjórna þeim. Keppt var í A-flokki, B-flokki og unghundaflokki. Í ár var sú nýbreytni að keppt var að 110 stigum í A-flokki. Stigaskorið er þó að meðaltali lægra en oft hefur verið. Margir féllu á tíma og dómarinn var ófeiminn við að víkja mönnum úr braut fyrir minnstu yfirsjónir. Aðeins einn keppandi náði að klára A-flokks brautina innan tímamarka, en það var Sverrir Möller með Gutta. Allir keppendur fengu tvö rennsli og gilti samtala þeirra til úrslita. 

Úrslit voru eftirfarandi:


A-FLOKKUR: Tvö rennsli giltu til úrslita, 110 stiga 350m braut, 15mín, 8 keppendur.

1) Aðalsteinn Aðalsteinsson og Doppa frá Húsatóftum 4,5 ára (62+74) 136 stig (besta tíkin)

2) Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum 8 ára (60+60) 120 stig

3) Svanur Guðmundsson og Korka frá Miðhrauni 6 ára (48+65) 113 stig

4) Halldór Sigurkarlsson og Smali frá Miðhrauni 6 ára (45+58) 103 stig (besti hundurinn)

5) Marsibil Erlendsdóttir og Skutla frá Skálholti 4 ára  (35+40) 75 stig

6) Sverrir Möller og Gutti frá Hafnarfirði 5 ára (0+60) 60 stig

7) Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi 3ja ára (0+50) 50 stig

8) Hilmar Sturluson og Perla frá Móskógum 8 ára (0+38) 38 stig


Unghundaflokkur, tvö rennsli giltu til úrslita, 100 stiga og 150m braut, 12mín, fimm keppendur.

1) Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum 33 mán (53+55) 108 stig

2) Aðalsteinn Aðalsteinsson og Snerpa frá Húsatóftum  21 mán (52+36) 88 stig

3) Einar Atli Helgason og Kría frá Snartarstöðum 18 mán (0+60) 60 stig

4) Einar Atli Helgason og Fenja frá Hafnarfirði 30 mán (51+0) 51 stig

5) Svanur Guðmundsson og Bonnie frá Dalsmynni 2ja ára, hættu keppni


B-flokkur, tvö rennsli giltu til úrslita, 100 stiga og 200m braut, 12mín, 2 keppendur:

1) Einar Atli Helgason og Strumpur frá Snartarstöðum7 ára (0+68) 68 stig

2) Marsibil Erlendsdóttir og Rotti frá Dalatanga 3 ára (0+35) 35 stig


Hér má sjá smá myndband frá mótinu: 

https://www.youtube.com/watch?v=7sCjt4-Ghqc&t=29s


Eftirtaldir aðilar styrktu mótið og er þeim hér með þakkað kærlega fyrir:

Baldvin og Þorvaldur

Landstólpi

Fóðurblandan

SS

17.10.2017 08:11

Ótitlað

Skráningarfrestur á landskeppnina er til miðnættis miðvikudagsins 18. október skráning hjá Bjarna í síma 862-4917.


Smalahundadeild Árnessýslu.

09.10.2017 10:52

Aðalfundur SFÍ 2017

Aðalfundur SFÍ 2017 verður haldinn 20. október 2017 kl. 20.00 í Golfskálanum Úthlíð.

09.10.2017 10:40

Landskeppni SFÍ 2017 og námskeið


Landskeppni Smalahundafélags Íslands verður eins og áður sagði helgina 21.-22. október í Austurhlíð Biskupstungum. Keppt verður í 3 flokkum. A, B og unghundaflokki. Skráning og frekari upplýsingar hjá Bjarna Mássyni s. 8624917. Smalahundadeild Árnessýslu heldur mótið að þessu sinni og dómari er Anthony Boggy Warmington. ISDS hefur séð um að útvega SFÍ dómara síðan SFÍ gerðist aðildarfélag og Anthony mun líka dæma í vinnuprófi ISDS og SFÍ á föstudeginum fyrir mótið. 

Deild Árnessýslu hefur hug á að halda 110 stiga keppni í A- flokki í ár (í stað 100 stiga eins og verið hefur) og mun leggja þá tillögu fram á aðalfundi SFÍ sem verður haldinn fyrir keppnina á föstudaginn 20. október. Þessi auka 10 stig fást þá fyrir að taka eina kind frá í lok brautar.

Deildin mun einnig bjóða upp á námskeið föstudaginn 20. október. Kennari verður áður nefndur dómari, Anthony Boggy Warmington. Skráning og frekari upplýsingar hjá Bjarna Mássyni s. 8624917.


19.09.2017 10:16

DÓMARI Á LANDSKEPPNI SFI OG VINNUPRÓF ISDS

DÓMARI á Landsmóti SFÍ 21-22. október 2017 verður Anthony Warmington. Hann getur tekið hunda í ISDS vinnupróf við sama tilefni. Þeir sem hafa áhuga á því (vinnuprófinu þeas) eru beðnir að hafa samband við Lísu fyrir 24. sept 2017, elisabetg@ru.is / s. 8631679

Flettingar í dag: 57
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 237
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 173988
Samtals gestir: 27074
Tölur uppfærðar: 5.5.2024 12:17:39