Færslur: 2018 Nóvember

13.11.2018 23:25

Deildarmót Austurlandsdeildar SFÍ Eyrarlandi

Síðara haustmót Austurlandsdeildar SFÍ var haldið að Eyrarlandi 11. nóvember síðastliðinn. Eftir að hafa lengst af ferðast í grenjandi rigningu og svartaþoku voru farnar að renna tvær grímur á þá keppendur sem komu lengra að. Það var þó ekki ástæða til að örvænta því þegar sá í Eyrarland létti til og fór mótið fram við góðar aðstæður þó þokan hafi aðeins reynt að stríða þátttakendum á köflum. Á Eyrarlandi var öll umgjörð til fyrirmyndar eins og fyrri daginn og valinn maður í hverju rúmi. Þar var gott brautarstæði með ágætri yfirsýn og kindurnar þjálar. Aðeins sog frá útihúsum en kindurnar voru sanngjarnar og gáfu áreynslulítið eftir þegar hundarnir komust fyrir þær. Vegleg verðlaun voru í boði en Jötunn Egilsstöðum og Landstólpi Egilsstöðum styrktu deildina með verðlaunum í formi hundafóðurs.


Alls tóku níu hundar þátt og hundar í A-flokki fengu tvö rennsli hver þar sem betra rennslið gilti til úrslita. Dómari var Agnar Ólafsson frá Tjörn.

Deildin þakkar öllum sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir. Reglulega gaman að það hafi verið hægt að koma á tveimur deildarmótum þetta árið. Menn og hundar reynslunni ríkari. Vonandi ávísun á það sem koma skal.

ÚRSLIT VORU EFTIRFARANDI:

UNGHUNDAFLOKKUR (100 stiga keppni)

1.       Sverrir Möller og Garri frá Auðólfsstöðum - 63 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

2.       Sverrir Möller og Kári frá Auðólfsstöðum - 61 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

3.       Sigurður Max Jónsson og Tása frá Ósi, ógilt (M: Káta frá Ósi - F: Snati frá Eyrarlandi)


B-FLOKKUR (100 stiga keppni)

1.       Marzibil Erlendsdóttir og Valur frá Tjörn, ógilt (M: Brook frá Wales - F: Spaði frá Eyrarlandi)

A-FLOKKUR (110 stiga keppni)

1.       Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi  - 95 stig (M: Lýsa frá Hafnarfirði - F: Prins frá Daðastöðum)

2.       Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur frá Húsatóftum - 82 stig (M: Kría frá Daðastöðum - F: Brúsi frá Brautartungu)

3.       Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum - 79 stig (M: Skotta frá Daðastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

4.       Sverrir Möller og Gutti frá Hafnarfirði - 74 stig (M: Ólína frá Hafnarfirði - F: Karven Taff frá Wales)

5.       Marzibil Erlendadóttir og Skutla frá Skálholti - 57 stig (M: Týra frá Innri-Múla - F: Karven Taff frá Wales)



MYNDAALBÚM: 

05.11.2018 18:47

Deildarmót Austurlandsdeildar Ytra-Lóni

Deildarmót Austurlandsdeildar SFÍ var haldið að Ytra-Lóni á Langanesi sunnudaginn 4. nóvember 2018. Brautin á Ytra-Lóni liggur niður við sjó sem gerir mótsvæðið svolítið sérstakt og feikna fallegt. Sjávarlyktin fyllir vitin og öldurnar syngja og dansa í fjörunni. Svolítil snjódula lá yfir svæðinu en ekkert sem þáttakendur létu stoppa sig þó hún hafi mögulega tafið aðeins fyrir kindunum á köflum. Alls tóku ellefu hundar þátt og Gunnar Einarsson frá Daðastöðum sá um dómgæslu.

Á Ytra-Lóni var boðið upp á dýrindis veitingar. Súpa fyrir keppni og hlaðborð með alls kyns gómsætu kaffibrauði eftir mót. 


Eins og alltaf þá verða svona mót ekki til að sjálfu sér. Það þarf undibúning,  aðstöðu og kindur, aðstoðarfólk til að sjá um sleppingar, dómara og svo auðvitað keppendur. Svona mót eru kærkominn vettvangur fyrir okkur sem höfum áhuga á að áfram séu góðir smalahundar ræktaðir á Íslandi til að koma saman. Bæði til að sjá hvaða hundar eru til á landinu og hvernig þeir vinna, en ekki síður til að sjá hvert annað.

Við sem vorum þarna komin saman ræddum að gaman væri að reyna að hittast aftur í vetur við eitthvað annað tilefni.

Austurlandsdeildin þakkar öllum sem að mótinu komu kærlega fyrir sitt framlag. Þess má geta að þetta er fyrsta mótið í mótaröð Austurlandsdeildarinnar, en annað mót er fyrirhugað á Eyrarlandi um næstu helgi ;) 

 

ÚRSLIT VORU EFTIRFARANDI:

UNGHUNDAFLOKKUR (100 stiga keppni)



1.       Sverrir Möller og Kári frá Auðólfsstöðum - 74 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

2.       Sverrir Möller og Garri frá Auðólfsstöðum - 64 stig (M: Týra frá Hafnarfirði - F: Grímur frá Daðastöðum)

3.       Einar Atli Helgason og Kría frá Snartarstöðum - 34 stig/Hætti keppni (M: Skoppa frá Sauðanesi - F: Strumpur frá Snartarstöðum)

A-FLOKKUR (110 stiga keppni)


1.       Elísabet Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum - 86 stig (M: Skotta frá Daðastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

2.       Elísabet Gunnarsdóttir og Kolur frá Húsatóftum - 84 stig (M: Kría frá Daðastöðum - F: Brúsi frá Brautartungu)

3.       Maríus Snær Halldórsson og Elsa frá Hallgilsstöðum - 81 stig (M: Sara frá Sigtúnum - F: Snati frá Móskógum)

4.       Maríu Snær Halldórsson og Sara frá Sigtúnum - 67 stig (M: Míla frá Bjarnastöðum - F: Dan frá Skotlandi)

5.       Þorvarður Ingimarsson og Spaði frá Eyrarlandi - 64 stig/Féll á tíma (M: Lísa frá Hafnarfirði - F: Prins frá Daðastöðum)

6.       Helgi Árnason og Skoppa frá Sauðanesi - 55 stig (M: Skutla frá Eyrarlandi - F: Prins frá Daðastöðum)

7.       Einar Atli Helgason og Strumpur frá Snartarstöðum - 36 stig/Féll á tíma (M: Rós frá Daðastöðum - F: Gutti frá Snartarstöðum)

8.       Sverrir Möller og Gutti frá Hafnarfirði - 0 stig/Ógilt (M: Ólína frá Hafnarfirði - F: Taff frá Wales)


MYNDAALBÚM: http://smalahundur.123.is/photoalbums/288729/


  • 1
Flettingar í dag: 119
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 140
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 165588
Samtals gestir: 26248
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 14:00:47