25.03.2011 23:14

Flott myndbönd!!

Muna ekki einhverjir eftir þessum myndböndum?www.horseandcountry.tv/episode/come-bye-2007-episode-1
Mig minnir að Varsi hafi bent á þau,hér á þessari síðu fyrir einhverju síðan!! alltaf gaman að skoða þau og sjá þessa kappa keppa sín á milli þarna á stóra bretlandi!
Góðir þættir,einir 14 eða 15,af mörgum góðum hundum og eigendum þeirra etja kappi!!
Datt í hug að minna á þetta ef einhverjir hafa misst af þessu hér á sínum tíma!! emoticon

15.03.2011 21:43

Ótitlað

Loksins, loksins

Úrslit úr Smalahundakeppninni í Háholti um daginn.

Unghundar
Blossi frá Gröf  og Aðalsteinn Aðalsteinsson 35 stig
Lappi frá Hurðarbaki og Reynir Þór Jónsson 32 stig
Kría Daðastöðum og Bjarni Másson 31 stig
 
B flokkur
Bangsi frá Langsstöðum og Ingvar Hjálmarsson 60 stig.
Colin Hafnarfirði Bjarni Másson hætti keppni
Perla og Ragnar Björnsson Hættu keppni

A flokkur
Rebbi frá Jörva og Aðalsteinn Aðalsteinsson 76 stig
Ólína frá Hafnarfirði og Gunnar Guðmundsson 61 stig
Askur Hurðarbaki og Bjarni Másson 43 stig
Snót Fjalli og Halldór Vilhjálmsson

kv. Smalahundadeild Árnessýslu

14.03.2011 12:16

Af gefnu tilefni....!!

                                                                  Hér kom upp umræða á litla spjallinu um daginn,"hvers vegna gefur fólk hvolpa?" sem mér fyndist áhugavert að ræða,og að menn tjáðu sig um.Sjálfum finnst mér,ég vera að tryggja hvolpi góða framtíð og eiganda sem tilbúinn er að leggja sig fram um að hugsa um hann af alúð og umhyggju, þó hann þurfi að leggja út fyrir honum eitthvað lágmarksverð!!
Hef séð alltof mörg dæmi um hitt!

13.03.2011 09:18

Ótitlað

Hér er hægt að sjá hversu mikið hefur verið ræktað undan vinsælustu hundunum í Bretlandi.
Wiston Cap á metið með næstum 2000 hvolpa.

http://www.bcdb.info/pupsperdog.htm

08.03.2011 21:32

keppnin?????

Hvernig er með upplýsingafulltrúann á Suðurlandi.
Er hann ekki tilbúinn með fréttir af keppninni?

02.03.2011 12:13

Taff


Þetta er Taff og hann er í þessum töluðu orðum á leið til landsins með flugi
Kevin Evans reddaði mér þessum öfluga smalahundi hann er tveggja og hálfs árs gamall og
er búinn að vinna til þó nókkurra verðlauna í unghundum og einnig í opnum flokki
ég vil þakka þeim sem hjálpuði til við innfluttninginn emoticon

kv Gunni

01.03.2011 10:51

Hvolpar

Tútú og Colinn  átta hvolpar, sex tíkur og tveir hundar
Það er búið að opna fyrir pantanir.

ps.örfáir hvolpar á lausu (:
 

kv.Reynir Hurðarbaki

28.02.2011 21:22

Keppni í Háholti

Setti inn myndir frá keppninni í Háholti. Keppnin var æsispennandi enda rjóminn af Íslenskum smölum og hundum mættir til leiks.
Kv.
Raggi

28.02.2011 16:56

Deildir Smalahundafélagsins

Sett hefur verið inn nýr tengill þ.e.Deildir og þar koma fram þær deildir Smalahundafélagsins sem til eru þær eru nú samt mis lifandi en alla vega getur fólk leitað til sinna eða næstu deilda um upplýsingar eða annað sem á brennur, ef einhverjar rangfærslur eru í þeim eða breytingar verða biðjum við um þær upplýsingar sem fyrst

kv .Gunni

26.02.2011 21:28

Tígull frá Eyrarlandi.


Fyrir margt löngu kom Tígull frá Eyrarlandi, (orginalinn) í heimsókn í Dalsmynni.

 Í gær birtist hér annar Tígull frá Eyrarlandi til að leika hér listir sínar.

 
Þessi mun vera undan Mac og Lýsu og er búinn að vera hjá nýjum eiganda í nokkrar vikur.



  Hann er um tveggja ára og nú er aldeilis tekið á því í tamningunni því hann á að vera orðinn afbragðshundur næsta haust.

 Það eru að sjálfsögðu snilldartaktar í honum, áhuginn og hlýðnin afbragð  og eina vandamálið að hann virðist hafa týnt fjarlægðargenunum á langri leið frá ræktandanum.  Það verður varla mikið mál að forrita þau í hann aftur.

21.02.2011 12:37

Daðastaðir myndbönd!

 Frábær myndbönd af afkvæmum Dans frá Daðastöðum og Macs frá Eyrarlandi inná heimasíðu Daðastaða sem er hér í flokknum "Tenglar" ,hér neðar á síðuni !!!!

Gaman að sjá þetta og takk fyrir,Lísa og Gunnar !!!

19.02.2011 23:43

Aðalfundur Árnesdieldar 2011.

  Á fundinn var hin þokkalegasta mæting enda haldinn í flotta fjárhúsinu hans Þorsteins Loga í Egilsstaðarkoti.
Nýir félagsmenn á þessu ári eru 10 og erum við því orðin 39 samkvæmt nýjustu tölum. emoticon
Hvergi er slegið slöku við í þessu gríðarlega öfluga smalahundafélagi og því til staðfestingar verður haldið námskeið í febrúar með frábæra keppni í lokin.emoticon
Svona í lokin vil ég þakka stjórninni fyrir vel unnin störf og hlakka til næsta starfsárs, þar sem ég efast ekki um að Árnesdeildin eigi eftir að toppa sig þetta árið.emoticon
Kv.
Raggi Rollulausi
 
   

09.02.2011 20:24

Nýjar myndir

Setti inn nokrar myndir af ungum hundum sem ég er að temja þessa dagana.
Gosi og Eyra eru alsystkyni undan Mac og Lýsu, ársgömul.   Danni er undan Mac og er ca 10mán.  Hann er undan tík sem er á Uppsölum í Skagafirði og heitir Blesa frá Dýrfinnustöðum

06.02.2011 19:46

Landskeppni 2011

Landskeppni Smalahundafélags Íslands

verður haldin á Eyrarlandi í Fljótsdal
helgina 27. og 28 ágúst

Austurlandsdeild stendur fyrir keppninni
og verður nánari dagskrá birt síðar hér á vefnum.

En þið takið helgina frá
og við tökum svo góða upphitun á hundunum okkar hér fyrir haustið.


fh. Austurlandsdeildar
Þorv. Ingimarsson

05.02.2011 19:12

Frá Smalahundafélagi Árnessýslu

Aðalfundur Smalahundafélags Árnessýslu verður haldinn fimmtudaginn 17.febrúar  kl  20.30 í fjárhúsinu hjá Þorsteini Loga í Egilsstaðakoti. Venjuleg aðalfundastörf. Þorsteinn Logi mun kynna starfsemi sína. Kaffisala.  Nýir félagar velkomnir. Mætum og höfum áhrif á starfsemina.

Fjárhundanámskeið verður haldið í Háholti helgina 25.-27. febrúar .                                                  Kennari verður Þorvarður  Ingimarsson  Eyrarlandi.  Félagsmenn hafa forgang á námskeiðið.

Opin fjárhundakeppni  verður haldin á sunnudeginum 27. febrúar í Háholti.

Skráning á námskeið og fjárhundakeppni hjá Bjarna í Háholti S: 8624917

  Ágætu félagsmenn.  Nú hækkar sól og styttist í vorið. Hundarnir að springa úr orku. Grípum nú  tækifærið og drífum okkur á námskeið og höfum gott og  gaman af.

                                                                                                                Kveðja frá stjórn

Flettingar í dag: 272
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 237
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 174203
Samtals gestir: 27083
Tölur uppfærðar: 5.5.2024 13:21:00