26.02.2012 08:53
fréttir

03.02.2012 06:58
Fréttir

02.02.2012 12:52
Fréttir
09.12.2011 18:13
Dæmi hver fyrir sig
Sumir hundar hafa þann sið - ef hægt er að tala um að hundar hafi sið - að tæta fé. Þeir fara þá með gelti og hlaupum um safnið og urra og glefsa en bíta kannski ekki og ef þeir þá bíta þá er það tilviljanakennt og nánast hending ein sem ræður hvort kindinni blæðir eða ekki. Slíkir hundar eru til óþurftar og ættu ekki að fá að þrífast en því miður eru þeim á stundum gefin grið en sjaldnast tekst að temja þá til betri umgengni við fénaðinn. Þó eru þess dæmi.
Dýrbíturinn verður ekki taminn, hann er vargur og lætur aldrei af vana sínum að fara í fé og bíta eða hvekkja með öðrum hætti. Dýrbíturinn er hættulegur enda er það regla að þegar upp um kemst þá er sá lúmski skratti sleginn af. Lesið hef ég vandaðar skýrslur frá búnaðarfélögum sem segja frá því að sumir hundar sýni strax sem hvolpar að hverju stefni og er þá undantekningarlaust mælt með því að gripið sé inn í og skepnunni lógað. En það er því miður of oft látið undir höfuð leggjast. Þekkt er að hvolpar setji sig í stellingar dýrbítsins strax nokkurra vikna og ættu menn þá þegar að vera á varðbergi. Þeir bíta sjaldnast svo ungir en eðlið leynir sér ekki. Þessir illskeyttu snatar skjóta upp herðakambinum og sýna tennurnar, urra og kasta sér að fénu - gera í raun allt nema bíta. Þetta þykir hláleg sjón en er mikilvæg viðvörun og hana ætti að taka alvarlega. Of oft er talað um þessa hegðun þessara smáhvutta sem broslega tilburði en það eru þeir að sönnu ekki.
Sjaldgæfust er sú tegund dýrbíta sem velur sér bara gemlinga að leggjast á. En hún er þekkt. Og man ég glöggt eftir vitnisburði bónda úr Biskupstungum sem talaði um þessa hegðun hunds sem ónáttúru. Ekki er vitað hvað veldur þessari sérvisku - ef hægt er að tala um sérvisku í hundi - sem þannig hagar sér en engu að síður er þetta sorgleg staðreynd. Það er hörmung að sjá veturgamalt fé illa leikið eftir óðan hund; sjá þar kannski á eftir vel ættaðri kind og vita að hún verður aldrei til brúks - ef hún þá lifir.
Hvað er til ráða? Einhverjir hafa talað um fræðslu en það er erfitt að kenna fleiri hundum en bara þeim gömlu að sitja, fyrir nú utan það að hundar eru daprir á bókina. Helst hefur mér skilist af ráðunautum að besta ráðið sé að skilja hundkvikindi þessi strax sem hvolpa - leyfa þeim ekki vera saman og stöðva strax alla tilburði í þeim til að hópa sig en það er oftar en ekki í hópum sem þetta náttúruleysi byrjar. Einn og einn skrattakollur þjálfar þetta þó upp með sér - ef hægt er að taka svo til orða að hundur þjálfi sig - og er þá ekkert til ráða annað en að aflífa dýrið. Einn og einn bóndi sem ég hef rætt við hefur nefnt að gelding gæti dugað á svona hund en því trúi ég illa og engar rannsóknir hef ég lesið sem benda til þess að það að leggjast bítandi á fé tengist náttúru hundsins.
Því er ekki annað en biðja bændur að vera á varðbergi; gljáfægður hundsfeldur og góð bygging og hlaupageta segja ekki nema hálfa söguna; glansandi skrokkur og vinalegt augnaráð geta blekkt. Bítandi hundur er gangandi tímasprengja - ef hægt er að kalla hund tímasprengju?
Svari nú hver fyrir sig.
08.12.2011 08:45
Ný smalahundadeild
Ég renndi í Hörgárdalinn föstudaginn 2 desember og sat stofnfund nýrrar smalahundadeildar.
Fékk hún nafnið Smalahundafélag Hörgársveitar og nágrennis.
Alls eru stofnfélagar 14 en aðeins sex af þeim sátu fundinn , var ég var við mikinn áhuga hjá þeim og víst að þeir verða góður biti í okkar flóru.
Stofnfundurinn var haldin í leikhúsinu á Möðruvöllum fræbæru gömlu húsi með góðum anda.
Stjórn félagsins skipast svo Aðalsteinn H. Hreinsson Auðnum 1 Formaður, Ásta J Aðalsteinsdóttir Myrkárbakka gjaldkeri og Davíð Jónsson Kjarna ritari.
Ég bið þá alla velkomna í hópinn og vænti góðs samstarfs í framtíðinni með þeim.
Frá stofnfundi.
Stjórn Smalahundafélag Hörgársveitar og nágrennis.
02.12.2011 13:03
Umræður um námskeiðahald
Sæl veri þið
Vona að ég sendi þetta á rétta aðila, þ.e. stjórn Smalahundafélags Íslands - eins og fram kemur á heimasíðu félagsins.
Ég hef aðeins rætt það við Reyni og Sverri, fyrir all nokkru, hvort við getum mótað með okkur samstarf um námskeiðahald til einhverns tíma. Það er jú æskilegt fyrir hundaeigendur að geta séð námskeiðsáætlun til einhverns tíma - segjum 2-4 ár. Það sem þarf að athuga og þið hafið kannski gert að einhverju leiti er m.a. eftirfarandi séð frá minni hlið og reynslu:
· Finna þarf markvissa leið til að vinna og bæta það námsefni sem er til í samstarfi eða með leyfi viðkomandi höfunda. Byggja á því sem til er og hugsanlega fá fleiri aðila inn til að bæta og þróa það áfram - fá myndir, teikningar eða annað. Í þetta væri hugsanlega hægt að sækja um styrki. Mjög sterkt er að fleiri en einn aðili standi að slíkri umsókn. Hugsanlega í tengslum við það safna upptökum sem geta nýst sem ítarefni.
· Skipta landinu upp, finna góða kennslustaði og reynda kennara á hverju svæði fyrir sig . Staðirnir skipta máli hvað varðar góða aðstöðu til verklegrar kennslu, bóklegrar og gagnvart veitingaþjónustu. Ferðakostnaður er orðinn gífurlegur og því æskilegt að fá góða kennara sem búa nær svæðunum - þó af og til geti verið æskilegt að breyta til. Hugsanlega einhver munur á milli aðila hvað varðar grunn - og framhaldsnámskeið. Þannig væri æskilegt að félagið fengi til liðs við sig kennara sem væru tilbúnir að bóka sig svolítið fram í tímann.
· Setja upp tímaplan til 2-4 ára þar sem tilgreind eru væntanleg námskeið í hverjum fjórðungi/landssvæði. Þannig að fólk geti gert ráðstafanir í tíma og gengið að námskeiðum nokkuð vísum - en auðvitað með fyrirvara alltaf um þátttöku. Hér erum við að tala um fjárhundanámskeið sem og hugsanlega önnur stök námskeið eða hugsanlega ráðstefnu/málþing um ýmsa þætti er varðar hundahald, þjálfun og kynbætur. - jafnvel mætti hugsa sér að fá að erlenda fræðimenn á þessu sviði - myndi þá falla inn í hugsanlega styrkumsókn fyrir heildarpakkann.
· Öll námskeið væru kynnt sameiginlega af Endurmenntun LbhÍ og Smalahundafélagi Íslands sem samstarfsverkefni - kæmi fram í kynningum, á námsefni og á skjölum. Báðir aðilar myndu nota sínar leiðir til markaðssetningar og kynningar á námskeiðunum.
· Hugsanlega er eitthvað fleira sem vert er að spá í og huga að en er ekki nefnt hér.
Mér þætti afar vænt um að fá að heyra viðbrögð frá ykkur í stjórninni við þessum punktum og hvort ykkur þykir þetta spennandi eða hvort þið hafið engann áhuga á samstarfi í þessum dúr.
Kveðja og góða helgi!
o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Verkefnisstjóri hjá Endurmenntun LbhÍ / Projectmanager of Continuing Education
Landbúnaðarháskóli Íslands / Agricultural University of Iceland
tel: 433 5000 - e-mail: asdish@lbhi.is
Sæl Ásdís
Þau viðbrögð er ég hef fengið frá þeim er telja sig færa leiðbeinundur hafa ollið mér miklum vonbrigðum.
Það speglast kanski af því að smalahundafélagið er félagsskapur áhugafólks og allflestir meðlimir starfandi bændur eða þeim tengdir.Skipulagning langt fram í tíman er kannski óþægileg fyrir marga.
Allnokkur umræða fór um þetta á síðasta aðalfundi okkar í ágúst og kom ég inn á það að menn eru að halda víða námskeið eða leiðbeina án þess að formaður félagsins hafi hugmynd,sem er slæmt því margar fyrirspurnir koma til mín auk lbhi veit ég.
Það væri frábært ef hægt væri að halda því frábæra starfi áfram sem Gunnar á Daðastöðum var frumkvöðull aðí samstarf i við bændaskólann.Ég lýsi hér með eftir að menn skoði þetta betur og mun birta þetta á heimasíðunnu okkar í von um umræður um málið.
Minni svo á þau góðu orð sem Þorvarður okkar á Eyrarlandi hefur oft uppi " þegar menn eru í félagi verða menn að skoða hvað þeir geta gert fyrir félagið en ekki hvað félagið getur gert fyrir þá"
Fyrir félagið er til mikils að vinna að geta starfað náið með lbhí.
Bestu kveðjur með von um viðbrögð .
Sverrir Möller
24.10.2011 22:52
Fjárhundakeppni Snæfellinga.
Hin árlega keppni Smalahundadeildar Snæfellinga verður haldin að Kaldármelum sunnudaginn 30 okt nk.
Reiknað er með að keppni hefjist kl. 1 en verði góð þátttaka mun byrjað fyrr.
Keppt verður í þrem flokku.
Flokki unghunda, yngri en þriggja ára.
B flokki fyrir eldri hunda sem ekki hafa náð 50 stiga rennsli í B.fl.
A flokki. Opinn flokkur og fyrir þá sem hafa fengið yfir 50 stig í rennsli, í B fl.
Skrá þarf hundana fyrir n.k. föstudag hjá Svan í s. 6948020 eða á netfangið dalsmynn@ismennt.is
Reiknað er með sterku og skemmtilegu móti þar sem ekki einungis allir núverandi íslandsmeistarar mæta til leiks, heldur muni mæta þarna til keppni hundar/tíkur sem hafa alla burði til að veita þeim harða keppni .
08.09.2011 16:38
Ótitlað
Þetta var gaman að sjá,viðmælendurnir tóku sig vel út og gerðu þessu góð skil !!
Þökk fyrir það !!
Kv
Einar Jóels.
05.09.2011 22:26
Fundargerð Aðalfundar 2011
Aðalfundur Smalahundafélags Íslands
haldinn að Eyrarlandi í Fljótsdal þann 26. Ágúst 2011
Sverrir Möller setti fundinn og kom með tillögu um að Lárus Sigurðsson yrði fundarstjóri og Unnur Ólafsdóttir fundarritari það var samþykkt.
Sverrir Möller flutti skýrslu stjórnar hann sagði frá ættbókarforritinu og styrk sem fékkst, einnig ræddi hann um skort á námskeiðshaldi. Þorvarður Ingimarsson sagði frá starfi Austurlandsdeildar. Ásta Einarsdóttir sagði frá starfi Skagafjarðardeildar. Bjarki Benediktsson sagði frá starfi Húnvetninga. Gunnar Guðmundsson sagði frá starfi Snæfellsdeildarinnar. Borgarfjarðardeildin er í dvala
Aðalsteinn Aðalsteinsson sagði frá starfi Sunnlendinga.
Skýrsla formanns samþykkt.
Marsibil Erlendsdóttir skýrði reikninga félagsins og þeir samþykktir.
Inntaka nýrra félaga: Sigurfinnur Bjarkason Tóftum, Aðalsteinn J. Halldórsson, Jón Geir Ólafsson Gröf, Marinó Bjarnason Tálknafirði, Eggert Stefánsson Laxárdal, Edze Jan deHaan Hámundarstöðum, Sara Ósk Haraldsdóttir Reykjavík.
Nýjir félagar samþykktir inn í félagið með lófaklappi.
Kosningar: Sverrir Möller á að ganga úr stjórn eftir 3 ár. Kosning fór þannig að hann fékk 13 atkvæði og Elísabet Gunnarsdóttir 1 atkv. Ásta Einarsdóttir klöppuð inn sem varamaður í stjórn.
Önnur mál:
1. Ættfræðiforritið - Hilmar Sturluson sagði frá þróunarferlinu og styrk frá Fagráði sauðfjárræktarinnar - umræður.
2. Keppnisreglur - umræður og síðan lagði Sverrir Möller fram eftirfarandi tillögu:
Tillaga um að keppnisfyrirkomulag sé óbreytt frá fyrra ári. Þ.a.sé landskeppni í tvo daga gildi samanlagður stigafjöldi til verðlauna. Það gildi um alla flokka.
Hundur í B-flokk sem nær 50 stigum í rennsli á landskeppni keppir þar eftir í A-flokki.
Unghundaflokkur miðast við 3 ár miðað við fæðingardag.
A-flokkur er opinn flokkur og öllum heimilt að keppa í þeim flokki.
Tillagan samþykkt.
3. Árgjald - Tillaga stjórnar er að hækka árgjald í 2.500 kr. Tillagan samþykkt.
4. Félagatal - Tillaga um að þeir sem ekki greiða árgjald í 2 ár verði sjálfkrafa strikaðir út úr félaginu. Tillagan samþykkt.
5. Logo - Stjórn félagsins falið að vinna að því.
6. Tillaga um að verðlaun fyrir besta fjárhundinn og bestu tíkina verði eingöngu veitt hundum sem keppa í A-flokk. Tillagan samþykkt.
Vegna myrkurs var samþykkt að lesa ekki upp fundargerðina í lok fundar. Fundi slitið
Unnur Ólafsdóttir fundarritari
02.09.2011 14:12
Heimsmeistara mót
Heimasíða Heimsmeistara mótsins 15-18 sept 2011 er www.worldsheepdogtrials.org og þar undir er linkur sem heitir
Live Twitter Feeds og þar uppfærist staðan jafn óðum, enn hef ég ekki séð að það sé bein útsending á netinu frá mótinu, en ef ég skildi rekast á link með útsendingu set ég hann hér inn
kv. Gunni
01.09.2011 17:05
Smalahundakeppnir
Þar sem ég hef setið heima undanfarna daga með veikt barn hef ég vafrað á netinu meira en vanalega og rakst ég á síðu Færeyskra smalahunda og viti menn þar er líf þeir eru búnir að halda nokkur námskeið og halda allavega þrjár keppnir á árinu, þetta finnst mér gaman að sjá og ég sá einnig að þeir taka þátt í hinni svo kölluðu Continental keppni þ.e. þar taka þátt þó nokkur Evrópu lönd og Skandinavíu löndin öll nema við, mikið væri nú gott ef Ísland væri með svona Pet Passport eins og Færeyjar, en allavega finnst mér góð framför hjá okkur en betur má ef duga skal og gaman væri ef við gætum hjálpast að við að finna kostunar aðila að námskeiðum og dómstörfum því með því fáum við alltaf spark í rassin til að halda áfram og bæta okkur og hundana okkar í von um að í framtíðinni verði hérna sterkir fjárhundar sem hægt sé að nota með sóma í keppni, Umhirða hunda hér á landi er til sóma ef marka má orð Calvins Jomes um síðustu helgi hann sagðist aldrei hafa komið til neins lands þar sem allir hundarnir sem hann sá voru mjög vel fóðraðir og hirtir, þar sem góður hundamatur kostar c.a 7-15 þús 15 kg poki hér á landi en ekki nema 1000-1500 kr í Wales er ljóst að við metum hundana okkar mikils svo nú er bara að slá í og halda áfram að temja og vonandi getum við fundið sponsor (a) til að hjálpa okkur með eins og eitt til tvö námskeið á ári svo við höldum áfram að vera í góðum bata með hundana okkar.
Takk fyrir liðna helgi Varsi og Fjölskylda eiga heiður skilið fyrir frábært mót
Kv. Gunni
28.08.2011 20:48
Landskeppni 2011
Landskeppni Smalahundafélagsins var haldin á Eyrarlandi í Fljótsdal dagana 27. og 28. ágúst 2011.
Mótið var haldið á vegum Austurlandsdeildar Smalahundafélagsins og var öllum opið . Keppnin fór vel fram í fínu veðri og aðstæður mjög góðar.
Dómari var Martin Calvin Jones frá Wales og nutu hundeigendur leiðsagnar hans varðandi hunda sína og einnig svaraði hann fyrirspurnum.
Verlaun voru gefin af fyrirtækinu Líflandi: gjafabréf, fóður og fleira.
Samanlögð stig tveggja rennsla giltu til úrslita.
Keppnin fór þannig:
Unghundar:
1. Svanur Guðmundsson og Tinni frá Staðarhúsum með 127 stig [63 +64]
2. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum með 127 stig [61 + 66]
3. Sverrir Möller og Bjartur frá Ytra Lóni með 121 stig [64 + 57]
B-flokkur:
1. Valgeir Magnússon og Snót frá Grundarfirði með 63 stig [23 + 40]
2. Bjarki Benediktsson og Trúska frá Breiðavaði með 47 stig [47 + 0]
3. Jón Geir Ólafsson og Snúður frá Garðabæ með 26 stig [26 +0]
A-flokkur:
1. Gunnar Guðmundsson og Karven Taff með 167 stig [81 + 86]
2. Hilmar Sturluson og Dot frá Wales með 154 stig [70 + 84]
3. Elísabet Gunnarsdóttir og Skotta frá Daðastöðum með 146 stig [75 + 71]
Verðlaun fyrir besta hund keppninnar hlutu Gunnar Guðmundsson og Karven Taff.
Verðlaun fyrir bestu tík keppninnar hlutu Hilmar Sturluson og Dot frá Wales.
Með góðri kveðju úr Fljótsdalnum,
Þaulsetnir gestir sem gestgjafar á Eyrarlandi losna ekki við.
24.08.2011 23:10
tilkynningarskylda
það væri gott að vita það hversu margir reikna með því að koma í sameiginlegan kvöldverð á laugardagskvöld.
hafið samband sem fyrst í 8621835
kv Varsi
19.08.2011 16:56
LÍFLAND
Jæja þá er komið á hreint hvað við fáum frá því frá því frábæra fyrirtæki og styrktaraðila til margra ára LÍFLANDI og sem fyrr eru verðlaunin ekki af verri endanum
Í hverjum flokki hljóða þau svo
1 sæti 15 kg Arion matar poki og 10,000 kr gjafabréf
2 sæti 15 kg Arion matar poki 5000 kr gjafabréf
3 sæti 15 kg Arion matar poki og 5000 kr gjafabréf
svo enn og aftur þökkum við LÍFLANDI frábærann stuðning
11.08.2011 21:38
Varðandi Landskeppni
Skulu þeir taldir hér upp og handhafar þeirra vinsamlega sjá til þess að gleyma þeim ekki heima er þeir koma að verja titilinn og jú endilega að vera búin að láta grafa í þá ártal smala og hund.
1.Stigahæsta Tíkin veittur í A-flokki.
2.Fjárhundur ársins veittur stigahæsta hundi í A-flokki.
3.Tígulsbikarinn veittur stigahæsta hund eða tík í A-flokki
4.Stigahæsti unghundurinn veittur í unghundaflokki.(hundur eða tík)
5.Stigahæsti hundur í B-flokki veittur í B-flokki.(hundur eða tík)
Og endilega að vera búin að skrá fyrir miðvikudagskvöld fyrir keppni svo að hundarnir verði í mótskránni og mótshaldarar þurfi ekki að vera að vinna þetti í stressi.
Sjáumst svo kát.
