02.10.2023 19:23
Starfsemi Smalahundafélags Íslands haust 2023 & vor 2024
02.10.2023 17:41
Námskeið á Blönduósi í Október 2023
Hér eru tenglar til að skrá sig á fjárhundanámskeið á Blönduósi með Paddy Fanning.
Fjárhundanámskeið með hundi lau 21.10 og sun 22.10 kl.9-17
https://umsokn.inna.is/#!/login/1189/651055
Fjárhundanámskeið með hundi mán. 23.10 og þri. 24.10 kl.9-17
https://umsokn.inna.is/#!/login/1189/651056
Fjárhundanámskeið án hunds lau. 21.10 og sun 22.10 kl.9-17
https://umsokn.inna.is/#!/login/1189/651058
Fjárhundanámskeið án hunds mán. 23.10 og þri 24.10 kl.9-17
22.08.2023 14:29
Heimsmeistaramót 2023
Heimsmeistaramót 2023
Heimsmeistaramót International Sheep Dog Society verður að þessu sinni haldið á Norður-Írlandi dagana 13.-16. september. Á heimsmeistaramótinu taka þátt um 240 keppendur frá yfir 30 löndum en það hefur verið haldið þriðja hvert ár frá 2002, utan 2020 vegna Covid faraldurs.
Búist er við að allt að 50 þúsund manns muni mæta til að fylgjast með mótinu en auk þess verður sýnt beint frá keppninni fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Þeir sem skipa lið Smalahundafélags Íslands á þessu ári eru Maríus Snær Halldórsson með Rosa og Elísabet Gunnarsdóttir með Ripley. Þetta er í annað sinn sem að Elísabet fara út fyrir Íslands hönd en síðast fór hún 2017 og var það í fyrsta sinn sem Ísland tók þátt á heimsmeistaramóti. Þau hafa því nokkra reynslu í farteskinu og vonum við að það skili þeim góðum árangri á erlendri grund.
Hvetjum við félagsmenn okkar til að fylgjast með og styðja okkar fólk, hvort sem er á Norður-Írlandi eða í gegnum beint streymi.
Streymið er á eftirfarandi link: https://page.inplayer.com/isdslive/item.html?id=3605345
Heimasíðan fyrir keppnina: https://www.worldsheepdogtrials.org/
18.08.2023 20:02
Landskeppnin 2023
Til upplýsinga þá hefst Landskeppnin 2023 í Mýrdal á morgun laugardaginn 19.8.2023 kl: 10:00.
16.08.2023 09:52
Landskeppni 2023
Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2023
Landskeppni SFÍ verður haldin í Mýrdal í Kolbeinsstaðahrepp helgina 19.-20. ágúst.
Keppt verður í flokki Unghunda, A-flokki og B-flokki.
Aðalfundur verður föstudagskvöldið 18. ágúst kl. 20 í Félagsheimilinu Lindartungu.
Skráning í keppni á tibra90@hotmail.com eða í síma 847-3831 Tíbrá
Nánari upplýsingar síðar.
16.08.2023 09:50
Landskeppni 2023 í Mýrdal
Landskeppni Sfí 2023
Fyrir þá sem vilja er hægt að nýta sér tjaldaðstöðu, svefnpokaaðstöðu og salerni í Félagsheimilinu Lindartungu þá daga sem Landskeppnin fer fram. Lindartunga er stutt frá Mýrdal þar sem keppnin er haldin (innan við 5 mínútur í akstri).
Stefnt er að sameiginlegum kvöldmat á laugardagskvöldinu - nánar auglýst síðar.
Landskeppni 2023
Boðið verður upp á sameiginlegan kvöldmat í Lindartungu á laugardagskvöldinu og biðjum við ykkur að senda mér skilaboð fyrir hádegi fimmtudags 17. ágúst til að melda ykkur í matinn.
Maturinn kostar 4.500 kr.
15.08.2023 08:14
Landskeppni 2023
Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2023
Landskeppni SFÍ verður haldin í Mýrdal í Kolbeinsstaðahrepp helgina 19.-20. ágúst.
Keppt verður í flokki Unghunda, A-flokki og B-flokki.
Aðalfundur verður föstudagskvöldið 18. ágúst kl. 20 í Félagsheimilinu Lindartungu.
Skráning í keppni á tibra90@hotmail.com eða í síma 847-3831 Tíbrá
Nánari upplýsingar síðar.
17.11.2022 18:21
Snati.is
Gaman er að segja frá því að vefur Smalahundafélags Íslands, Snati, hefur verið uppfærður.
Breytingar eru þær helstar að verið var að leiðrétta villur sem voru til staðar og uppfæra þróunarumhverfi.
Þetta er gert til að tryggja notendaöryggi og nútímavæða upplifun notenda, til dæmis með því að gera vefinn aðgengilegan á snjalltækjum.
Fyrir hönd stjórnar vil ég sérstaklega þakka Elísabetu Gunnarsdóttir fyrir hennar framlag við undirbúning og prófanir á nýja vefnum.
Fyrir hönd stjórnar Smalahundafélags Íslands.
Jens Þór Sigurðason.
17.10.2022 20:24
Hugmynd fyrir aðalfund 2022
14.10.2022
Efni: Styrkur Smalahundafélags Íslands til deilda félagsins vegna æfinga innan hús á haust mánuðum 2022 og vor mánuðum 2023.
Hver deild getur sótt um styrk vegna leigu á reiðhöllum eða sambærilegu húsnæði ætlað til tamninga fjárhunda opið félagsmönnum Smalahundafélags Íslands veturinn 2022 - 2023. Ef upp kemur sú staða að félagsmenn vilja nýta styrkinn á fleiri en einum stað i hverjum landshluta, þá er það hlutverk formanns deildanna að dreifa styrknum innan svæðisins og tryggja jafnræði félagsmanna óháð staðsetningu.
Áætlaður styrkur er allt að 15.000 kr fyrir hverja æfingu og getur hver deild sótt um styrki sem nemur 8 æfingum, það er heildarupphæð allt að 120.000 kr.
Heildar kostnaður fyrir félagið nemur allt að 840.000 kr, tengt verkefninu (ef allar deildir sækja um 8 daga).
Framkvæmd: Á heimasíðu félagsins verður umsóknar skjal þar sem fram koma allar almennar upplýsingar staður, dagsetning og ábyrgðarmaður.
Í framhaldinu mun stjórn félagsins rýna árangur verkefnisins og koma með tillögur fyrir næsta aðalfund.
Jens Þór Sigurðarson
Stjórnarmaður í Smalahundafélagi Íslands.
17.10.2022 20:18
Aðalfundur SFÍ 2022
Húsatóftir 14.10.2022
Aðalfundur Smalahundafélags Íslands að Húsatóftum 2022
Formaður Smalahundafélags Íslands setti fundinn sem haldin var á Hestakránni við Húsatóftir 14.10.2022 kl: 21:00.
Arnþór Jónsson var kjörinn fundarstjóri og Jens Þór Sigurðarson ritari.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar.
- Reikningar.
Reikningar bornir undir fundinn.
Reikningar samþykktir með fyrirvara um samþykki skoðunarmanna.
- 1. Kosningar stjórnarmanns. Arnfríður Sædís Jóhannesdóttir gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Tibrá Halldórsdóttir var kosin í stjórn Smalahundafélags Íslands. Arnfríði Sædísi er þakkað fyrir hennar störf fyrir SFÍ.
2. Varamenn:Núverandi varamenn eru Bjarki Benediktsson frá Breiðavaði og Agnar Ólason frá Tjörn.Þar sem varamenn eru kosnir á víxl er komið að endurnýjun, býður sig fram og tekur við af Bjarka Benediktssyni.Fundurinn samþykkti Bjarka Benediktsson sem varamenn.
3. Kosning á umsjónarmanni ættbókaforritsins Snata? Arnþór Jónsson frá Geirastöðum og Elísabet Gunnarsdóttir frá Ketilsstöðum voru kosin umsjónarmenn með ættfræðiforritinu Snata.
Hilmari Sturlusyni frá Móskógum er þakkað fyrir óeigingjarnt starf til margra ára.
- Önnur mál.
- Merki félagsins, stjórnin ber undir fundinn tillögu að merki félagsins.
Tillögur komu að lagfæringu á hugmynd stjórnar, þ.e. lagfæra neðri hluta merkisins og skoða að útlínur merkisins yrðu útlínur Íslands.
- Tillaga frá Jens Þór Sigurðarsyni varðandi styrk SFÍ til handa deildum félagsins til æfingaaðstöðu innandyra (haust -vetur 2023). Hugmynd Jens Þórs samþykkt með fyrirvara um breytingu á orðalagi tillögunnar. Þar sem tilgreint er upphæðir fylgja orðin: allt að. Þannig að þeir sem fá styrk, geti nýtt allt að kr og þeir sem fái frítt húsnæði nýti sér það áfram.
- Tillaga Aðalsteins formanns SFÍ að þriggja daga keppni næstkomandi hausti.
Aðalsteinn útskýrði hugmynd sína. Tillaga samþykkt.
Staðsetning næsta mót rædd, bjóða Snæfellsnes deildinni að halda næstu keppni.
- Tillaga stjórnar að hækka styrk SFÍ til Deilda félagsins sem halda Landskeppnina úr 50.000 kr. Tillaga samþykkt að hækka upphæðina í 100.000 kr.
- Árgjald SFÍ hefur ekki hækkað í 10 ár, stjórn óskar eftir umræðu. Hugmynd að hækkun um 1500 kr, eða í 5000 kr árgjald samþykkt eftir ágætis umræður með fjölbreyttum sjónarmiðum.
- Örstutt yfirferð yfir fjárhundanámskeið haldið á Miðfossum í Borgafirði 7 – 13 mars 2022.
Nemendur voru 36, 24 með hunda og 12 án hunda.Eftirspurn var töluverð umfram framboð.Verkefnið var samstarfsverkefni Smalahundafélags Íslands, Bændasamtaka Íslands og Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Almenn ánægja fundarmanna með verkefnið.
- Malta Jim: Elísabet Gunnarsdóttir fer yfir ferlið í stuttu máli.
- Minning um fallin félaga, formaðurinn minnist Svans Guðmundsson frá Dalsmynni. Aðalsteinn minntist Svans, ræddi feril hans og hans arfleið í félaginu.
Aðalsteinn Aðalsteinsson formaður þakkar fyrir góðan fund, fundi slitið.
Fundinn sátu:
Arnþór Jónsson
Sverrir Möller
Kristinn Hákonarson
Björgvin Sigurbergsson
Marsibil Erlendsdóttir
Tíbrá Halldórsdóttir
Magnús Ingimarsson
Maríus Halldórsson
Jens Þór Sigurðarson
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Elísabet Gunnarsdóttir
Krystow Krawczyk
Hilmar Sturluson
Arnfríður Sædís Jóhannesdóttir