07.03.2009 18:22
Móskógar
Sæl
Þá er búið að greiða árgjaldið og vonandi verður síðunni ekki lokað aftur. Ég hef verið að reyna að ná sambandi við 123.is því þeir bjóða að flytja efnið frá gömlu síðunni yfir, okkur að kostnaðarlausu ef það er þá hægt.
Ég er að byrja á að fara með hvolpana í fé með æðimisjöfnum árangri, ekki meira um það en ég er allveg gegnblautur að svita í hvert sinn.
kv Hilmar
02.03.2009 07:01
Hvolpar til sölu
Til sölu eru tvær tíkur og þrír hundar eru undan Tinnu frá kirkjubóli og Killiebrae Jim. Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma: 4831047 og 8656421. Einar Jóels
14.02.2009 21:22
auglýsingar
Hef verið að velta því fyrir mér hvort ekki sé best ef félagar sem vilja auglýsa eitthvað hvort það séu hundar uppákomur eða annað að það sé gert hér á blogginu.
kveðja Valli
12.02.2009 21:22
Prufa
Hæ, er að prufa að setja inn mynd og texta.
Hér gengur allt sinn vana gang nema hvað ég prófaði að setja tíkurnar í kindur og þá aðra í einu. Þær höfðu báðar þokkanlegan áhuga en ég var með ca 50 kindur, þær voru voða svipaðar fóru fyrir og svo var erfitt að ná þeim heim.
kv. Hilmar
12.02.2009 19:28
Horse and Country
Til hamingju allir hundaáhugamenn með síðuna og þakkir til þeirra sem hafa unnið að þessu.
Nú þarf að virkja félagana til þess að taka þátt í því að halda þessari síðu lifandi.
Margir puttar vinna létt verk.
Gunni skrifaði hér um daginn eitthvað um erlendar sjónvarpsstöðvar og sýningar á efni frá hundakeppnum í UK. Nú er ég semsagt búinn að fá botn í þetta.
Lárus á Gilsá var svo vænn að láta mig vita að hægt væri að fylgjast með svona efni í gegn um gerfihnattardisk á rás sem heitir Horse and country, þetta er einhver undirsíða Sky sky-280 channel (skiptir ekki máli). Ég er með svona disk og hef verið að horfa á ýmsar erlendar stöðvar en þessi stöð kom ekki upp hjá mér þó að ég væri stilltur á réttan gerfihnött, sem heitir Astra 2 og er náttúrulega alveg grundvallaratriði. En ástæðan var sú að móttakarinn hjá mér var ekki kóðaður á þessa stöð og tók þess vegna ekki sendinguna. Ég keypti nýjan móttakara og nú er ég semsagt að horfa á myndir frá Internationalinum í sumar og þátt sem heitir One man and his dog, sem er þáttaröð sem margir hundaáhugamenn þekkja.
En það er komin upp krísa á heimilinu.
Í kvöld, fimmtudagskvöld eru tveir þættir um hunda og verða sýndir frá kl 21-23 á þessari rás, og er víst nokkuð fastur liðu á þessum kvöldum eftir því sem Lárus og Billa segja mér. Billa er nefninlega með þetta líka.
En það er ekki eina sjónvarpsefnið sem sýnt er á fimmtudagskvöldum sem heimilisfólk hér á bæ hefur áhuga á, því aðþrengdar eiginkonur eru í rúv á sama tíma, og sé ég fram á meiriháttar togstreitu um þessa hluti.
kv Varsi
10.02.2009 16:35
og hvað svo
kveðja að vestan