21.07.2018 21:52

Landskeppni SfÍ

Landskeppni Smalahundafélags Íslands helgina 24-26 ágúst 2018

 

Í samstarfi við Smalahundafélag Hörgársveitar og nágrennis. Áætlað er að keppnin fari fram á  Möðruvöllum í Hörgárdal.

Keppt er í A-flokki, B-flokki og Unghundum. Keppendum er bent á að kynna sér reglur um keppnina á vef Smalahundafélagsins.  Slóðin er http://smalahundur.123.is/

 

Dómari verður hinn 68 ára gamli, Ian Fleming frá Suður- Skotlandi. Hann er sauðfjár og nautgripabóndi með 3000 kindur og 150 nautgripi. Hann hefur langa reynslu af keppni og mótahaldi á vegum ISDS. Hann er varaformaður ISDS í Skotlandi og hefur verið brautarstjóri stæstu móta ISDS mörg undanfarin ár (International and World Trial).

Hér er því um að ræða geysilega reyndan mann í flestu sem viðkemur Border Collie fjárhundum, bæði hvað varðar almenna notkun og svo keppnir. Fólki gefst tækifæri til þess að nýta sér þekkingu hans á föstudeginum með því að koma á námskeið þar sem hann miðlar sinni reynslu.

 

Námskeið byrjar kl. 09.00 á föstudeginum, leiðbeinandi verður eins og fram kemur Ian Fleming.  Námskeiðið er bæði fyrir lengra komna og byrjendur og það er öllum opið.

 

Á föstudeginum er einnig er hægt að koma með hunda í vinnupróf vegna grunnskráningar í ISDS. Upplýsingar um það veitir formaður SFÍ

Þorvarð Ingimarsson gsm 8621835

 

 Aðalfundur Smalahundafélags Íslands hefst kl. 20.30 á föstudag í Leikhúsinu á Möðruvöllum.

 

Upplýsingar um námskeiðið og keppnina ásamt skráningum eru hjá Aðalsteini H. Hreinssyni í s: 865-3910 eða á audnir1@simnet.is

Nánari tímasetning á keppni auglýst síðar
Top of FormBottom of Form

Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 180
Gestir í gær: 66
Samtals flettingar: 171918
Samtals gestir: 26803
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 07:58:28