05.02.2011 19:12
Frá Smalahundafélagi Árnessýslu
Aðalfundur Smalahundafélags Árnessýslu verður haldinn fimmtudaginn 17.febrúar kl 20.30 í fjárhúsinu hjá Þorsteini Loga í Egilsstaðakoti. Venjuleg aðalfundastörf. Þorsteinn Logi mun kynna starfsemi sína. Kaffisala. Nýir félagar velkomnir. Mætum og höfum áhrif á starfsemina.
Fjárhundanámskeið verður haldið í Háholti helgina 25.-27. febrúar . Kennari verður Þorvarður Ingimarsson Eyrarlandi. Félagsmenn hafa forgang á námskeiðið.
Opin fjárhundakeppni verður haldin á sunnudeginum 27. febrúar í Háholti.
Skráning á námskeið og fjárhundakeppni hjá Bjarna í Háholti S: 8624917
Ágætu félagsmenn. Nú hækkar sól og styttist í vorið. Hundarnir að springa úr orku. Grípum nú tækifærið og drífum okkur á námskeið og höfum gott og gaman af.
Kveðja frá stjórn