Færslur: 2024 Desember
05.12.2024 13:25
Netfundur 27.11.24
27. nóvember 2024
Netfundur stjórnar Smalahundafélags Íslands
Fundur settur kl 21. Á fundinum eru Ingveldur Ása Konráðsdóttir, Björn Viggó Björnsson og Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir.
Ingveldur er búin að vera í sambandi við erlenda þjálfara í haust og er verið að leggja lokahönd á að semja við einn þeirra um að koma til landsins og halda námskeið í lok febrúar. Námskeiðið verður haldið á Mið-Fossum í samstarfi við Lbhí með svipuðu sniði og undanfarin ár. Verður það kynnt betur fyrir félagsmönnum á allra næstu dögum.
Póstur hefur borist frá ISDS með upplýsingum um m.a. árgjald og verðskrá næsta árs. Ingveldur ætlar að koma því á framfæri.
Rætt var um stöðuna á kennaranáminu í Noregi. Það er í vinnslu en ekki komnar dagsetningar eða frekari uppýsingar frá Norðmönnum og því orðið ljóst að ekkert verður úr því á þessu ári.
Alltaf bætast við fleiri félagsmenn og hefur talsvert verið um skráningar á gotum í Snata.
Stjórnin vill hrósa Maríusi Halldórssyni og öðrum á norðausturhorninu sem standa að nýju keppnisfyrirkomulagi. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu og verður vonandi til þess að deildirnar styrkist.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl 22.
01.12.2024 09:50
Upplýsingar frá ISDS
Kæru félagar
Hér eru upplýsingar frá ISDS sem ég bið ykkur að kynna ykkur. Ef þið hafið áhuga á að gerast meðlimur ISDS sendið tölvupóst á snatisfi@gmail.com fyrir 15. janúar 2025.
![]() |
- 1