26.02.2011 21:28
Tígull frá Eyrarlandi.
Fyrir margt löngu kom Tígull frá Eyrarlandi, (orginalinn) í heimsókn í Dalsmynni.
Í gær birtist hér annar Tígull frá Eyrarlandi til að leika hér listir sínar.
Þessi mun vera undan Mac og Lýsu og er búinn að vera hjá nýjum eiganda í nokkrar vikur.
Hann er um tveggja ára og nú er aldeilis tekið á því í tamningunni því hann á að vera orðinn afbragðshundur næsta haust.
Það eru að sjálfsögðu snilldartaktar í honum, áhuginn og hlýðnin afbragð og eina vandamálið að hann virðist hafa týnt fjarlægðargenunum á langri leið frá ræktandanum. Það verður varla mikið mál að forrita þau í hann aftur.
Skrifað af svanur
Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 511000
Samtals gestir: 55751
Tölur uppfærðar: 10.3.2026 01:34:19