Blogghistorik: 2025 N/A Blog|Month_2

25.02.2025 13:00

Netfundur 13.02.25

13. febrúar 2025

 

Netfundur stjórnar Smalahundafélags Íslands

 

Fundur settur kl 21. Á fundinum eru Ingveldur Ása Konráðsdóttir, Björn Viggó Björnsson og Hrafnhildur Tíbrá Halldórsdóttir. 

Rætt um námskeiðin sem verða haldin í febrúar með Oscar Murguia. Ánægjulegt að tókst að fylla bæði námskeiðin. Björn og Ingveldur munu sjá um að renna í gegnum geldféð sem þarf að sækja á miðvikudeginum og skipta síðan á milli sín að vera aðstoðarmenn á námskeiðunum. 

Finna þarf dómara fyrir landskeppni 2025 og verður farið í það á næstu dögum. 

 

Fyrirhuguð ferð félagsins er á frumstigi. Rætt lítillega um hentugar tímasetningar og hvert væri áhugavert að fara. 

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 21.40.

25.02.2025 12:01

Námskeið

SFÍ í samstarfi við endurmenntun LBHÍ héldu tvö námskeið á Miðfossum með Oscar Murguia Ruiz. 

 

Takk fyrir komuna og aðstoðina.

 

Nokkrar myndir af námskeiðinu má sjá í myndaalbúminu á síðunni.

 
  • 1
Antal sidvisningar idag: 723
Antal unika besökare idag: 23
Antal sidvisningar igår: 5362
Antal unika besökare igår: 102
Totalt antal sidvisningar: 446401
Antal unika besökare totalt: 54093
Uppdaterat antal: 31.10.2025 14:53:36