Blogghistorik: 2021 Författad av
01.09.2021 11:05
Landsmót SFÍ Ytra Lóni 28.-29. ágúst 2021
Smalahundafélag Íslands og Austurlandsdeildin þakkar öllum
sem að keppninni komu fyrir gott mót. Margir lögðu hönd á plóg eins og þarf að vera ef svona viðburðir eiga að geta átt sér stað. Sérstakar þakkir fær Sverrir Möller og
fjölskylda. Frábærlega vel að öllu staðið hvort sem það var á keppnisvellinum
eða kaffistofunni. Kindurnar voru heilt yfir bæði einsleitar og þjálar, og
völlurinn skemmtilegur á sama tíma og hann reyndi á menn og hunda. Ekkert
landsmót var í fyrra sökum covid og því kærkomið fyrir félagsmenn SFÍ að geta
komið saman í ár við þetta tækifæri. 
Dómari var Jonleif Jörgensen frá Færeyjum og dæmdi hann af þekkingu,
sanngirni og röggsemi. Núll stig voru talsvert áberandi í keppninni í ár eins
og sést á stigaskorinu. Jonleif var samkvæmur sjálfum sér þar og gaf enga
sénsa. Hann bauð aftur á móti uppá að þeir sem gerðu ógilt fengu að klára
tímann sinn í braut ef þeir vildu, til að fá amk reynsluna þó engin fengju þeir
stigin. Jonleif sagði frá því að í Færeyjum væru um 6 keppnir á ári og
yfirleitt á milli 20 og 30 keppendur í hvert sinn. Gaman væri að okkur tækist
með tímanum að komast á svipaðan stað með fjölda móta og vinir okkar
Færeyingar. Mótin hvetja menn til dáða og svo er félagskapurinn auðvitað
óviðjafnanlegur!
SFÍ bauð upp á þá skemmtilegu nýung að streyma "life" frá mótinu á facebook síðu félagsins og vakti það mikla lukku. Þar geta félagsmenn enn séð öll rennslin fyrir utan nokkur rennsli seinnipartinn á laugardag sem urðu tækniörðugleikum að bráð.
Alls fóru 21 hundur í braut. Hver hundur fékk eitt rennsli hvorn dag og samanlagður fjöldi stiga báða dagana gilti til úrslita. Úrslit voru eftirfarandi:
| UNGHUNDAR
  (100 stiga braut): | dagur 1 | dagur 2 | Samtals | |
| 1 | Agnar
  Ólafsson og Dúfa frá Miðfjarðarnesi, SFÍ 2019-2-0110 | 58 | 64 | 122 | 
| 2 | Ingvi
  Guðmundsson og Bassi frá Hríshóli, SFÍ 2019-1-0008 /ISDS 377564 | 69 | 52 | 121 | 
| 3 | Elísabet
  Gunnarsdóttir og Ása frá Ketilsstöðum, SFÍ 2018-2-0044 /ISDS 362805 | 68 | Ógilt=0 | 68 | 
| 4 | Jón Axel og
  Prins frá Geitabergi í Svínadal, SFÍ 2018-1-0077 | Ógilt=0 | 46 | 46 | 
| 5 | Sverrir
  Möller og Grímur frá Ketilsstöðum, SFÍ 2020-1-0039 /ISDS 372680 | Ógilt=0 | 44 | 44 | 


| B-FLOKKUR
  (100 stiga braut): | dagur 1 | dagur 2 | Samtals | |
| 1 | Edze Jan de
  Haan og Seimur frá Dalatanga, SFÍ 2017-1-0052  | 64 | 45 | 109 | 
| 2 | Björn Jóhann
  Steinarsson og Skriða frá Skriðu, SFÍ 2017-2-0094 | 45 | 58 | 103 | 
| 3 | Hrafnhildur
  Tíbrá Halldórsdóttir og Skotta frá Dalatanga, SFÍ 2017-1-0054  | 55 | Ógilt=0 | 55 | 
| 4 | Sigurður J
  Hermannsson og Táta frá Skriðu, SFÍ 2017-2-0095 | Ógilt=0 | Ógilt=0 | 0 | 


| A-FLOKKUR
  (110 stiga braut): | dagur 1 | dagur 2 | Samtals | |
| 1 | Aðalsteinn
  Aðalsteinsson og Burndale Biff frá UK, SFÍ 2016-1-0072 / ISDS 344058  | 80 | 82 | 162 | 
| 2 | Sverrir
  Möller og Gutti frá Hafnarfirði, SFÍ 2012-1-0070 | 73 | 63 | 136 | 
| 3 | Agnar
  Ólafsson og Birna frá Tjörn 1, SFÍ 2015-2-0088 / ISDS 342196 | 55 | 79 | 134 | 
| 4 | Maríus Snær
  Halldórsson og Rosi frá Ketilsstöðum, SFÍ 2018-1-0048 /ISDS 362803 | 62 | 67 | 129 | 
| 5 | Sverrir
  Möller og Kári frá Auðólfsstöðum, SFÍ 2015-1-0055 | 50 | 76 | 126 | 
| 6 | Jens Þór
  Sigurðsson og Groesfaen Nap frá UK, SFÍ 2014-1-0099 / ISDS 335224  | 66 | 58 | 124 | 
| 7 | Aðalsteinn
  Aðalsteinsson og Doppa frá Húsatóftum 2, SFÍ 2013-2-0012 / ISDS 340286  | Ógilt=0 | 97 | 97 | 
| 8 | Elísabet
  Gunnarsdóttir og Ripley frá Írlandi, SFÍ 2017-2-0080 / ISDS 354573  | Ógilt=0 | 92 | 92 | 
| 9 | Maríus Snær
  Halldórsson og Fríða frá Hallgilsstöðum 1, SFÍ 2018-2-0070 / ISDS | Ógilt=0 | 71 | 71 | 
| 10 | Krzystof
  Krawczyk og Oreó frá Hallgilsstöðum 1, SFÍ 2016-2-0073 | Ógilt=0 | 55 | 55 | 
| 11 | Agnar
  Ólafsson og Kópur frá Húsatóftum 2, SFÍ 2016-1-0049 /ISDS 347203 | 37 | Ógilt=0 | 37 | 
| 12 | Krzystof
  Krawczyk og Loki frá Hallgilsstöðum 1, SFÍ 2017-1-0071 | Ógilt=0 | Ógilt=0 | 0 | 

Gaman er að segja frá því að samhliða Landsmótinu fóru fram
video vinnupróf ISDS. Fimm verðugir hundar fóru í það próf og stóðu sig með
prýði. Að því gefnu að þeir standist skoðun gerir það þeim kleift að skrá hundana í ættbók International
Sheepdog Society (ISDS) sem SFÍ á aðild að. Hundum með ISDS skráningu fjölgar
jafnt og þétt eins og sést á úrslitunum hér að ofan. Innan banda SFÍ hafa lengi
verið til góðir og vel ræktaðir hundar en með ISDS aðild og skráningu standa
okkar félagar og okkar hundar jafnfætis smölum og hundum í félagsskap sambærilegum
SFÍ um allan heim. 
Félagsmenn
SFÍ með hunda skráða hjá SFÍ geta sótt um aðild að ISDS og vinnupróf allan
ársins hring. Áhugasamir eruð beðnir um að hafa samband við undirritaða sem mun
þá aðstoða við að koma því í kring.
Aðalfundur
SFÍ var haldinn á föstudagskvöldið 27. ágúst. Þar voru mættir 14 félagsmenn.
Ýmis mál rædd og farið yfir ársreikninga síðustu tveggja ára. Fundargerð og
ársreikninga má nálgast hér á heimasíðunni undir "fundargerðir" 
Með góðum
kveðjum,
Elísabet
Gunnarsdóttir fh. Austurlandsdeildarinnar og Smalahundafélags Íslands
- 1