|
SMALAHUNDAFÉLAG ÍSLANDS |
|
13.05.2012 19:16Hvolpar til sölu![]() Komið öll sæl Ég á enn eftir tvo rakka báðir eru undan Karven Taff Íslandsmeistara síðasta árs í opnum flokki þessi þrí liti og yngri er undan Ronju frá Hafnarfirði en hún er dóttir Tíguls frá Eyrarlandi margföldum íslandsmeistara og móðir hennar er Týra frá Kaðalstöðum sem vann til þó nokkura verðlauna í keppnum og átti best 88 stig í keppni í opnum flokki, hinn hvolpurinn er svartur og hvítur sterklegur hundur og er undan Ólínu frá Hafnarfirði sem var Íslandsmeistari í unghundum 2010 með 84 stig og hefur unnið til verðlauna í opnumflokki báðir eru bólusettir og örmerktir fleirri myndir eru í myndaalbúmi hvolpar til sölu nánari upplýsingar fást í síma 8466663 eða á sveipu@hive.is kv Gunni Skrifað af Gunnar 14.04.2012 17:51ÓtitlaðKomið sæl, nú langar mig að frétta af nýja vefnum þ.e. skráningar kerfinu því nú er ég komin með 3 got sem ég hef ekki getað skráð og eigendur hvolpanna ,, hundanna í sumum tilfellum er farið að lengja eftir að fá skráningar blað eða einhverja staðfestingu á því sem ég hef sagt um ættir og upperni
kv Gunni Skrifað af Gunnar 18.03.2012 22:42Námskeið á Húsatóftum.Setti inn myndir af námskeiðinu. Í aðalhlutverkum eru: Alli leiðbeinandi og Rebbi Þórir og Oddur sem er undan Lísu og Dan Þorgeir og Píla sem er frá Hurðarbaki Rúnar og ónefnd tík ,að ég held, frá Trausta í Austurhlíð Þakkir fyrir gott námskeið. Kv. Raggi Skrifað af Raggi 27.02.2012 16:03Hvolpar![]() Komið sæl öll Það fæddust fyrir 5 vikum 8 hvolpar undan Ólínu og Taff , 5 tíkur og 3 rakkar Ólína virðist sterkari í lita erfðum en Taff því allir urðu þeir tví litir þessir hvolpar eru ekkert öðru vísi en aðrir hvolpar sem okkur hafa fæðst þ.e ég verð þeim degi feginn þegar þeir verða allir farnir til nýrra eigenda, Fleirri got hafa komið undan Taff og öðrum tíkum, Trúska hans Bjarka á Breiðavaði gekk fram yfir og lést það sem í henni var , næst kom undan Kríu 5 hvolpar 4 rakkar og ein tík þar af voru 3 þrí litir , næst gaut Loppa í Kýrholti hún kom seint til Taff og gekk eiginlega upp um leið en einn hvolpur var í henni og kom hún því miður dauð en Loppa var sónarskoðuð daginn áður en hún gaut og var hvolpurinn lifandi þá, síðast gaut Kolka frá Eyrarlandi og hún fæddi 5 hrausta hvolpa 3 tíkur og 2 rakka og engann 3 litann svo þetta er það sem komið er undan Taff kv Gunni Skrifað af Gunnar 26.02.2012 18:52Hundar á DalatangaÉg er að leika mér með smá hlýðni-æfingar þegar ég er ekki að temja hundana í kindunum. Skrifað af Billa 26.02.2012 11:13Tamning eða þjálfun???? Ágætu félagar. Í verkefni sem ég hef verið að vinna síðustu dagana hafa komið upp skiptar skoðanir á hvort nota eigi orðið " tamning " eða " þjálfun " yfir hugtakið að temja/ þjálfa hundinn. Ég hef notað tamning án þess að velta þessu nokkuð fyrir mér, nánast alveg eins og í hestamennskunni. Tem hundinn en þjálfa hann t.d. fyrir keppni eða tek taminn hund í þjálfun fyrir einhvern þegar fer að líða að göngum. Það er komið á daginn að gæludýraeigendur og menntaðir hundafræðingar þéttbýlisins virðast nota orðið " þjálfun " þegar " tamning " virðist algengari í sveitinni. Nú bið ég ykkur að láta í ljós álit á því hvað ykkur er tamast og jafnvel hvaða skoðun þið hafið á málinu. Kveðja. Svanur. Skrifað af svanur 26.02.2012 08:53fréttir Svakalega hafa allir lítið að skrifa um, en samt sér maður að það fara
margir inná síðuna á hverjum degi. Við verðum endilega að vera dugleg að
spjalla saman og fá fréttir, hér á smalahundasíðunni. það hlýtur
eithvað að vera að gerast, ég bíð spennt eftir viðbrögðum. Skrifað af Billa
Flettingar í dag: 20 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 85 Gestir í gær: 27 Samtals flettingar: 141533 Samtals gestir: 39026 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 12:56:08 |
Spjallið okkar clockhere Eldra efni
Smalahundafélag Íslands Farsími: 8483010 Sverrir MöllerHeimilisfang: lögheimili formans að hverju sinniUm: Sverrir Möller formaður Reynir Þór Jónsson ritari. Marsibil Erlendsdóttir gjaldkeri.Tenglar |