Færslur: 2010 Apríl

30.04.2010 12:44

Blogg

Frá Smalahundadeild Árnessýslu.
Dagskrá sumar og haust 2010.
Haldnar verða fjórar samæfingar með fjárhundana.Þ.e. 16. júní, 7. júlí, 21.júlí og 4.ágúst. Nauðsynlegt er að menn láti vita ef þeir ætla að mæta á æfingar.Síminn hjá Bjarna formanni er: 8624917 . Uppskeruhátíð verður haldin 14.ágúst. Þá verður sett upp létt æfingamót og haft gaman af.
6. nóvember verður haldið opið félagsmót.
Ekki er búið að ákveða staðsetningar fyrir þessa atburði, en það verður auglýst síðar.
Drífa Gestsdóttir hundaþjálfari verður með hlýðninámskeið í Oddgeirshólum eitt eða fleiri kvöld í sumar. Fer eftir áhuga manna hversu oft það verður. Nánar auglýst síðar.
Við hvetjum hundeigendur til að taka þátt í þessum atburðum. Kveikjum áhugann hjá fólki og fáum fleiri til að vera með. Kv. Stjórnin.

23.04.2010 16:49

Hvolpar til sölu.

Sem satt hvolpar til sölu á Ytra Lóni en það gleymdist að nefna hvar væri hægt að fá nánari upplýsingar. Hafið samband við Sverrir í síma 848 3010 eða með því að senda tölvupóst á ytralon@simnet.is Sjá myndir í myndaalbúm.

22.04.2010 23:16

Úrslit úr keppni á Eyrarlandi

 

Gleðilegt sumar.

Keppnin var haldin hér á Eyrarlandi um síðustu helgi þrátt fyrir að ekki liti vel út um tíma.  Það var svo einungis vegna harðfylgi örfárra einstaklinga sem kalla ekki allt ömmu sína þegar skreppa þarf bæjarleið, að hún var haldin. 

Fyrstan skal nefna Gunnar nokkurn Guðmundsson  hundaræktanda úr Hafnarfirði sem aldrei hefur látið sig vanta þegar haldið hefur verið hundamót undanfarin ár á Íslandi.  Annar til sögunnar kom bóndi og búfjáreftirlitsmaður af suðurlandi, sem kom eins og stormsveipur inn í hundamennskuna og lætur mikið að sér kveða, heit sá maður Reynir bak við Hurð.  Sá þriðji og ekki sá sísti er hreppstjóri vestan af landi og er landslýð þekktur af verkum sínum á hundavellinum, heitir sá Gísli af Snæfellsjökli.  Síðust kom svo eftir sjóferð langa, okkar ástsæla og ylhýra kona af útskerinu við ystu nöf, sem oftar en ekki hefur þurft að notast við öll þau farartæki sem fundin hafa verið upp í heiminum til þess að sækja hundamót, heitir hún Billa hin baldna.  Að þessu sinni var ófært landveginn á Mjóafjörð, en svo heppilega vildi til að farþegaskipið Norræna var úti fyrir austfjörðum á leið til Seyðisfjarðar og  var skipstjórinn fenginn til þess beygja lítið eitt af kúrsinum og skjótast í land við Dalatanga og kippa Billu með.  Henni með í för var svo hin dygga fylgiskona og klappstýra Stína stuð.

Á föstudeginum kl 18 þegar kalla átti í flug til Egilsstað og þeir kappar Gunni og Reynir voru tilbúnir til brottfarar, var fluginu aflýst vegna gossins í Eyjafjallajökli.  Nú voru góð ráð dýr og til þess að gera langa sögu stutta, stukku þeir félagar upp í bíl og brunuðu af stað.  Á leið sinni út úr bænum hringdu þeir svo í hreppstjórann og báðu hann að fylgja sér.  Erindið væri svo brýnt að embættismann þyrfti með.  Gísli hlýddi, kastaði frá sér tólunum í miðri gjöf,  dró fram svarta frakkann, setti upp húfuna með stjörnunni og stökk í veg fyrir þá félaga.  Þeir voru svo komnir í Fljótsdalinn á fjórða tímanum.

Úrslit

Unghundar,

1.       Reynir Þór Jónsson

Colin frá Hafnarfirði    56 stig  45 stig

F: Mac Eyrarlandi

M: Týra frá Kaðalstöðum

2.       Þorvarður Ingimarsson

Fluga frá Eyrarlandi    30 stig  49 stig

F: Mac Eyrarlandi

M: Lýsa frá Hafnarfirði

3.       Gunnar Guðmundsson

Ólína frá Hafnarfirði   46 stig  31 stig

F: Mac Eyrarlandi

M: Týra frá Kaðalstöðum

Þarna sýndi sunnlendingurinn klærnar og hefði þessi stigamunur hæglega orðið mun meiri.  Colin er vel taminn og getumikill hundur með frábæran stíl og óhætt fyrir okkur hina að koma undirbúnir til leiks ætlum við okkur að keppa við hann.  Það mátti kannski sjá að Ólína þyrfti að fara eina fjallferð eða svo, fyrir svona keppni, orkan er mikil og sjaldan möguleiki fyrir eigandann að komast í kindur. En aldurinn vinnur með henni og hennar tími mun koma.

B-flokkur,

1.       Reynir Þór Jónsson

Tútú frá Daðastöðum    62 stig   61 stig

F: Dan Daðastöðum

M: Soffía frá Daðastöðum

2.       Gísli þórðarson

Kata frá Daðastöðum   31 stig  lauk ekki síðara rennsli

F: Dan Daðastöðum

M: Soffía frá Daðastöðum

Aftur sýndi sunnlendingurinn takta og sigraði hreppstjórann með yfirburðum.  Þarna áttust við systurnar frá Daðastöðum sem eru mjög flottar týpur með geysilega flottan stíl.  Báðar mjög hlýðnar en ennþá vantar uppá, að úthlaupið sé nægilega gott hjá Kötu.  Hún notar of mikið auga í úthlaupinu og dregur sig inn á kindurnar.  Þetta lagar Gísli í túninu heima í sumar og mætir svo stórhættulegur næst.                                                                                                                                                                                     

A-flokkur

1.       Þorvarður Ingimarsson

Mac Eyrarlandi    90 stig

2.       Þorvarður Ingimarsson

Lýsa frá Hafnarfirði   89 stig

F: Tígull frá Eyrarlandi

M: Týra frá Kaðalstöðum

3.       Marsibil Erlendsdóttir

Spóla frá Daðastöðum  83 stig

F: Rex frá Daðastöðum

M: Lús frá Eyrarland

Billa er búin að lofa mér því að hún skuli vinna mig einhvern tíma.  Satt best að segja var farið að fara um mig, því þarna hélt ég að væri komið að því.  Skiptingin gekk dj illa hjá henni og það varð mér til happs.  Satt best að segja var Spóla alveg frábær og allir sammála um að aldrei hefði henni tekist svo vel upp, það gekk allt upp, neeemma að skipta.  En þarna sá ég, að hún á eftir að standa við orð sín.

Dómari var Lárus Sigurðsson

Sleppingar sáu um, þeir Rúnar Ásgeirsson og Ingimar Jóhannsson

Ég vil svo þakka keppendum og starfsmönnum fyrir keppnina.  Þessi keppni hefði ekki verið haldin nema fyri það að það er til duglegt fólk sem er til með að leggja dálítið á sig fyrir félagsskapinn.  Hafið bestu þakkir fyrir að koma og eiga ánægjulega helgi með okkur hér.

f.h. Austurlandsdeildar Smalahunsdafélags Íslands

kv Varsi

16.04.2010 21:40

Ótitlað

Jæja,
Þá eru loksins komnar inn myndir af hvolpunum.
Það er hægt að skoða þær í myndaalbúminu.

Kv. Sverrir

15.04.2010 20:44

Keppni á Eyrarlandi

Þrátt fyrir eldgos og hrunskýrslu verður haldin fjárhundakeppni á laugardaginn 17. apríl á Eyrarlandi í Fljótsdal
Keppt verður í A-flokki B-flokki og unghundaflokki
Keppnin hefst kl 13.00 og stendur eins lengi og þurfa þykir.
Allir velkomnir og nóg gistirými fyrir þá sem eiga um langan veg að fara.
f.h. Austurlandsdeildar Smalahundafélags Íslands

Koma svo.

kv Varsi

05.04.2010 12:36

Hundasýning Smalahundadeildar Árness.

rekið í aðhald



Smalahundadeild Árnessýslu var með hundasýningu í Rangárhöllinni á Hellu á milli atriða hjá Meistaradeild ungmenna sem var á Föstudaginn langa síðastliðinn. Við Bjarni formaður fórum með Dot og Ask og sýndum þar glæsileg tilþrif !

01.04.2010 21:25

Að þjálfa fyrir keppni

Jæja gott fólk.
Hvernig gengur að þjálfa fyrir keppnina?  Á ekki að gefa sér spark? Mér veitti ekki af einu góðu en er að peppa mig upp. 

Hverjir koma?
Þarf vonandi ekki að taka það fram að það eru allir velkomnir og ég vona að það leggi sem flestir land undir fót, sama hversu langt það er.  Hér verður tekið á móti gestum meðan húsrúm leyfir.

kv Varsi
  • 1
Flettingar í dag: 119
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 140
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 165588
Samtals gestir: 26248
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 14:00:47